„Maður er alveg tómur, eins og það sé búið að taka loft úr blöðru“ Stefán Árni Pálsson skrifar 28. október 2021 10:30 Valgerður var lögð í gróft einelti í grunnskóla sem hefur fylgt henni allt lífið. Valgerður Helga Björnsdóttir varð fyrir grófu einelti í grunnskóla sem hafði djúpstæð áhrif á hennar líf. Hún hefur glímt við þunglyndi frá tólf ára aldri, mjög alvarlegu og vanlíðan hefur verið það mikil að hún hefur tvívegis reynt að taka eigið líf.
Í dag hefur hún náð góðum bata með aðstoð fagaðila, hefur tekið sjúkdóminn í sátt og lært að lifa með honum, starfar á leikskóla og lítur björtum augum til framtíðar. Eva Laufey hitti Valgerði á dögunum og fékk að heyra hennar sögu í Íslandi í dag á Stöð 2. „Allt í einu var mér ekki boðið í afmæli og það voru miðar látnir ganga um bekkinn og ég fékk enga miða. Ég vissi alveg hvað stóð á miðunum og svo var ég bara hunsuð. Þær fóru að gera grín að fötunum sem ég var í. Ég kom kannski með skopparabolta í skólann og það var allt tekið af mér,“ segir Valgerður og heldur áfram. Kláðaduft í nærbuxurnar „Þær eltu mig og hrópuðu einhverjum ókvæðisorðum að mér. Allt í einu var maður orðin mjög óvinsæl þó ég hafi ekki gert neitt. Þegar þetta var búið að standa yfir í einhvern tíma þá fór maður að trúa því að ég ætti þetta skilið. Ef ég tala um alvarlegasta atvikið, þá var ég í leikfimi og maður fer í búningsklefann og skiptir um föt. Þegar ég kem svo upp þá finn ég ekki buxurnar mínar og það var búið að setja kláðaduft í nærbuxurnar mínar. Ég gat ekki farið í nein föt og ég var að koma úr sturtu og dreif mig þá í úlpu og setti handklæði yfir mig og hljóp grátandi. Ég var að fara í matreiðslu og þá sagði ég fyrst frá hvað hafði skeð.“ Valgerður segir að þarna hafi matreiðslukennarinn farið til skólastjórans og sagt honum frá. „Það var talað við foreldrana og stelpurnar sem voru gerendur. Mestan part eftir að þetta skeði hef ég átt mjög erfitt með að treysta fólki. Það eru kannski fjögur til fimm ár síðan að ég fór að hugsa að það væri í lagi að eiga vini, þeir vilja þér ekkert illt. Þetta er liðin tíð en ég vona að fólk geri sér grein fyrir því að þetta getur haft mjög slæm áhrif á fólk að vera lagt í einelti. Ég var í Hlíðaskóla og svo fór ég í nýjan skóla og það var mér til happs að vera í Hagaskóla í 9. og 10. bekk og þá fór ég á fullt í leiklist og eignaðist nýja vini og leið mjög vel í tvö ár.“ Rúmföst í tvo mánuði Valgerður átti góð ár í Hagaskóla en fór síðan í Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem gamlir bekkjarfélagar og gerendur í hennar eineltismáli voru einnig í skólanum. Gamlar minningar rifjuðust upp sem gerði Valgerði erfitt fyrir en hún segir að kórinn og sönginn hafi bjargað sér á þessum árum. Þunglyndi kraumaði en það komu góðir tímar inn á milli. „Maður upplifir algjört vonleysi og ég var kannski rúmföst í tvo mánuði og sá bara það sem ég hafði gert rangt. Svo leið tíminn og þú lást bara þarna í þínum eigin heimi. Ekkert komst að nema þú og þín líðan. Jú maðurinn kom og gaf mér að borða, ég fór kannski aðeins niður og fékk mér kaffi en svo bara fer maður aftur inn. Ég hafði mig varla af stað í sturtu, ég hafði ekki einbeitingu að horfa á sjónvarp eða lesa en ég les mjög mikið annars. Maður er alveg tómur, eins og það sé búið að taka loft úr blöðru og alveg hjálparvana.“ Hún segist hafa hugsað hvort hún væri að íþyngja hennar nánustu og hvort þau væru ekki betur sett án hennar. „Það er mjög slæm tilfinning. Ég hef reynt þetta tvisvar en sem betur fer heppnaðist þetta ekki. Þegar ég var fertug gleymdi ég að ég átti alveg góð tímabil. Ég hef ekki verið þunglynd í þrjátíu ár upp á hvern einasta dag. Þú kannski manst frekar eftir þessu en ég er búin að læra núna að það þýðir ekki að vera bitur og maður verður bara að líta á þetta sem eitthvað sem er hægt að læra af. Ef einhver kemur og er þunglyndur og vill tala um það þá get ég kannski leiðbeint eitthvað.“ Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Geðheilbrigði Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fleiri fréttir Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Sjá meira