Vera, Vilborg og Áslaug til UN Women Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. október 2021 09:40 Fv.: Vera Líndal Guðnadóttir, Vilborg Anna Garðarsdóttir og Áslaug Ármannsdóttir. Vísir/Aðsend UN Women á Íslandi hefur ráðið þrjár nýjar starfskonur til samtakanna; Vilborgu Önnu Garðarsdóttur, Veru Líndal Guðnadóttur og Áslaugu Ármannsdóttur.
Í tilkynningu frá samtökunum segir að Vilborg Anna Garðarsdóttir taki við starfi fjáröflunarstýru samtakanna og beri ábyrgð á einstaklingsmiðaðri fjáröflun UN Women á Íslandi, samskiptum við mánaðarlega styrktaraðila ásamt því að leiða starf fjáröflunarhóps samtakanna. Vilborg er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst. Vilborg hefur unnið lengst af í fjármálum og var framkvæmdastjóri fjármálasviðs í átta ár hjá fyrirtæki í ferðaþjónustu. Vera Líndal Guðnadóttir var ráðin sem sérfræðingur í samfélagsmiðlun hjá UN Women á Íslandi og ber ábyrgð á stafrænni markaðssetningu og samfélagsmiðlum samtakanna. Vera er með BA gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og diplómagráðu fráMyndlistaskólanum í Reykjavík. Síðastliðin ár hefur Vera starfað við verkefna- og viðburðastýringu, innri markaðssetningu og samfélagsmiðla hjá Símanum, hún var einnig lengi vel ein af skipuleggjendum Druslugöngunnar. Áslaug Ármannsdóttir er rekstrarstýra samtakanna og ber ábyrgð á skrifstofurekstri og starfsmannahaldi, verkefnastjórnun, og fyrirtækjasamstarfi. Áslaug er með BA-gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands og MPM gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur lokið námi í markþjálfun frá Coach U og teymisþjálfun frá Team Coaching Studio. Síðustu ár hefur Áslaug starfað við verkefnastýringu, mark- og teymisþjálfun.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira