Leiðrétting frá Þórólfi: Níu fullbólusett börn greinst með Covid-19 Atli Ísleifsson skrifar 29. október 2021 12:58 Frá bólusetningu barna í Laugardalshöll í ágúst síðastliðinn. Vísir/Vilhelm Níu af rúmlega 12 þúsund fullbólusettum börnum á aldrinum tólf til fimmtán ára hafa greinst með Covid-19, eða 0,07 prósent. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir frá þessu og leiðréttir þar með upplýsingar sem bárust frá heilbrigðisráðuneytinu fyrr í vikunni þar sem sagði að ekkert barn í umræddum hópi hafi greinst með Covid-19.
Þórólfur segir í færslu á síðunni Covid.is að „vegna tæknilegra vandamála“ hafi komið í ljós að fyrri upplýsingar væru ekki réttar. „Af um rúmlega 12.000 fullbólusettum börnum 12-15 ára þá hafa 9 greinst með COVID-19 eða 0,07%. Til samanburðar þá hafa um 3.750 af um 266.000 fullbólusettum einstaklingum eldri en 15 ára greinst með COVID-19 (1,4%). Vísbendingar eru því um að bólusetning barna kunni að vera áhrifaríkari en bólusetning fullorðinna til að koma í veg fyrir smit af völdum COVID-19. Ákvörðun um bólusetningu barna yngri en 12 ára hefur ekki verið tekin enda hafa engin bóluefni verið samþykkt hér á landi fyrir börn á þeim aldri. Bóluefni frá Pfizer er nú umsóknarferli hjá Lyfjastofnun Evrópu og er von á niðurstöðu í desember 2021,“ segir Þórólfur. Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins á mánudaginn sagði að hingað til hafi 64 prósent barna á aldrinum tólf til fimmtán ára verið fullbólusett en bólusetning þeirra hófst síðastliðinn ágúst.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Börn og uppeldi Tengdar fréttir Ekkert fullbólusett barn smitast hér á landi Ekkert fullbólusett barn á aldrinum tólf til fimmtán ára hefur greinst smitað af Covid-19 hér á landi en þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Er það í takt við rannsókir sem gerðar voru með bóluefni Pfizer þar sem vörnin reyndist 100 prósent. 25. október 2021 16:17 Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Innlent Strætó rann á bíl og ruslaskýli Innlent Fleiri fréttir Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Sjá meira
Ekkert fullbólusett barn smitast hér á landi Ekkert fullbólusett barn á aldrinum tólf til fimmtán ára hefur greinst smitað af Covid-19 hér á landi en þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Er það í takt við rannsókir sem gerðar voru með bóluefni Pfizer þar sem vörnin reyndist 100 prósent. 25. október 2021 16:17