Innlent

Óljóst hvort loftslagsráðstefnan skili nægilegum árangri

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra. vísir/Vilhelm

Umhverfisráðherra segir óljóst hvort COP26 ráðstefnan muni skila nægilegum árangri í loftslagsmálum þrátt fyrir að einhver framfaraskref verði stigin. Forsætisráðherra kynnir stefnu íslenskra stjórnvalda í dag.

Þriðji dagur loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow hófst í morgun með áframhaldandi ávörpum þjóðarleiðtoga. Katrín Jakobsdóttir mun stíga á svið upp úr hádegi og kynna stefnu og aðgerðir Íslands í loftslagsmálum.

„Meginskilaboð Íslands eru þau að við höfum lögfest markmiðið um kolefnishlutleysi árið 2040 og erum eitt af aðeins ellefu ríkjum sem höfum gert það,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra. 

Hann segir að Katrín muni einnig fara yfir aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og kynna sameiginlegt markmið okkar með Noregi og Evrópusambandinu um 55 prósenta samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030.

Umhverfisráðherra fer til Glasgow um helgina og mun taka þátt í seinni hluta ráðstefnunnar í næstu viku þar sem samningaviðræður fara fram.

„Þarna eru undir efnisatriði sem snúa að gagnaöflum og mörkuðum með kolefniseiningar, þannig það er verið að reyna leggja lokahönd á að ganga frá atriðum sem út af standa varðandi Parísarsamkomulagið. Við höfum lagt á það áherslu að það sé sífellt gagnsæi í gagnaöflun varðandi kolefnismarkaði, þannig það sé tryggt að þar sé verið að telja kolefniseiningar einu sinni en ekki tvisvar og að við séum með kerfi sem heldur utan um það.“

Guðmundur Ingi segist bjarstýnn á að einhver framfaraskref verði stigin á ráðstefnunni.

„En hvort hún skilar okkur nægilega langt - það er hins vegar annað mál. Það er ofboðslega mikilvægt að við sjáum skref tekin í þá átt að við drögum úr því gati sem við eigum enn eftir að fylla upp í. Þannig að við getum klárað það á næstu árum ef það tekst ekki á þessari ráðstefnu,“ segir  Guðmundur Ingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×