Fá ekki að spila heimaleiki í varabúningum fyrir góðgerðarmál Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. nóvember 2021 20:01 Félög í ensku úrvalsdeildinni fá ekki að leika heimaleiki sína á öðrum degi jóla í varabúningum. Malcolm Couzens/Getty Images Félög í ensku úrvalsdeildinni sem eiga að spila heimaleiki á öðrum degi jóla fá ekki að spila í varabúningum sínum fyrir góðgerðarsamtök sem berjast gegn heimilisleysi.
Enska úrvalsdeildin hefur hafnað beiðni þeirra níu liða sem spila heimaleiki á öðrum degi jóla um að fá að spila leikina í varabúningum sínum. Ónotaðar aðaltreyjur liðanna áttu þá að vera seldar á uppboði með eiginhandaráritunum leikmanna. Þeir fjármunir sem myndu safnast af þessari treyjusölu áttu svo að renna til góðgerðafélagsins Shelter sem berst gegn heimilisleysi í Bretlandi. The Premier League has refused clubs permission to wear their away kits at home matches on Boxing Day in a bid to raise funds for homeless charity Shelter.— Sky Sports News (@SkySportsNews) November 9, 2021 Talsmaður ensku úrvalsdeildarinnar segir að deildinni berist mikið af beiðnum af þessu tagi, en geti því miður ekki styrkt þau öll. „Ensku úrvalsdeildinni berast margar beiðnir frá góðgerðasamtökum á hverju tímabili, en við getum ekki styrkt þau öll. Félögin hafa fullan rétt á að styrkja góð málefni, svo lengi sem það fylgi reglum ensku úrvalsdeildarinnar.“ Þau lið sem leika heimaleiki á öðrum degi jóla eru Liverpool, Wolves, Burnley, Manchester City, Norwich, Tottenham, West Ham, Aston Villa og Brighton, en samkvæmt heimildum Sky Sports hafa forráðamenn EFL, sem samanstendur af fyrstu, annarri og þriðju deild Englands, ekkert á móti því að lið í þeim deildum taki þátt í verkefninu.
Enski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira