Faldi milljónir á klósettinu í forsetahöllinni Kjartan Kjartansson skrifar 24. nóvember 2021 15:49 Pedro Castillo (með hvítan hatt) þegar hann tók við embætti forseta Perú í júlí. Vísir/Getty Jafnvirði rúmlega 2,6 milljóna íslenskra króna fannst falið á baðherbergi skrifstofustjóra forseta Perú í forsetahöllinni í Lima þegar saksóknarar gerðu húsleit þar fyrir helgi. Skrifstofustjórinn er til rannsóknar fyrir spillingu og sagði af sér á föstudag.
Bruno Pacheco, fyrrverandi skrifstofustjóri Pedros Castillo forseta, er sakaður um að hafa þrýst á yfirmann skatta- og tollastofnunar landsins að veita fyrirtækjum í eigum vina hans vildarkjör. Því neitar Pacheco. Þegar saksóknarar gerðu húsleit í forsetahöllinni á föstudag fundu þeir tuttugu þúsund dollara á salerni á skrifstofu Pacheco. Hann fullyrðir að hann hafi átt peningana sem hafi verið hluti af launum og sparnaði hans. Skrifstofustjórinn er sagður hafa um 6.250 dollara í mánaðarlaun. Pacheco hafnar því alfarið að hann hafi sagt af sér vegna þess að hann hafi brotið af sér. Þess í stað hafi hann stigið til hliðar svo að forsetinn yrði ekki álitshnekk vegna þess sem Pachecho kallar „rógsherferð“, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Castillo tók við embætti forseta Perú í júlí en hann bar sigur af Keiko Fujimori, frambjóðanda hægrimanna og dóttur fyrrverandi einræðisherra landsins, í forsetakosningum. Sótt er að Castillo úr höllum áttum þessa dagana. Flokkur Fujimori ætlar að kæra forsetann til embættismissis og fyrrum félagar hans í kennarasambandi landsins hafa staðið fyrir kröfugöngum til að krefjast bættra kjara.
Perú Erlend sakamál Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira