Haukur hefur sig til flugs á föstudaginn Sindri Sverrisson skrifar 29. nóvember 2021 13:31 Haukur Helgi Pálsson lék með Andorra í spænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en er kominn heim til Íslands og spilar með Njarðvík í vetur. Getty/Noelia Deniz Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta, leikur sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík á þessari leiktíð þegar liðið tekur á móti Vestra á föstudaginn í Subway-deildinni. „
Ég er tilbúinn í nokkrar mínútur núna gegn Vestra en stefni að því að vera orðinn nokkuð sprækur í næsta bikarleik,“ sagði Haukur í samtali við heimasíðu Njarðvíkinga og vísar til bikarleiksins við Val 13. desember. Haukur sneri heim úr atvinnumennsku í sumar eftir að hafa síðast spilað með liði Morabanc Andorra í spænsku úrvalsdeildinni. Hann kom heim meiddur eftir að hafa meiðst alvarlega í ökkla í mars. Í sumar samdi þessi 29 ára leikmaður við Njarðvík til þriggja ára og nú er komið að því að hann mæti til leiks í Ljónagryfjunni. „Maður er að reyna að vera skynsamur og fara ekki of geyst í hlutina. Það á allt að vera gróðið en nú vantar bara upp á snerpu, sprengikraft og leikform,“ segir Haukur um stöðuna á sér. Njarðvík er í 5.-7. sæti Subway-deildarinnar með fjóra sigra og þrjú töp. Liðið mætir Vestra á föstudag, Stjörnunni 9. desember, Val í bikarnum 13. desember og ÍR 16. desember, áður en við tekur 13 daga hlé. Á milli jóla og nýárs er svo stórleikur Keflavíkur og Njarðvíkur á dagskrá.
Subway-deild karla UMF Njarðvík Mest lesið „Var líklegur í að hoppa í ána og segja að þetta sé búið“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira