Innlent

Stytting á einangrun áhættulítil en þó ekki áhættulaus

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Már Kristjánsson.
Már Kristjánsson. Stöð 2/Sigurjón

Aldrei hafa fleiri tilfelli kórónuveirunnar greinst en í gær þegar 1. 601 greindist smitaður. Yfirlæknir á Landspítalanum segir að faraldurinn sé í veldisvexti og telur að fara þurfi varlega i að stytta einangrun frá sjö dögum í fimm þó það kunni að vera skynsamlegt.

Kórónuveiran heldur áfram að dreifa sér eins og eldur í sinu. Í gær greindist 1.601 smitaður af covid nítján samkvæmt bráðabirgðatölum, þar af greindust 44 á landamærunum. Þetta er enn eitt metið og nánast tvöföldun frá því í fyrradag þegar 839 greindust smitaðir. Í dag eru 7.585 í einangrun og 6.424 í sóttkví. Enn liggja sex á gjörgæslu vegna covid veikinda þar af fimm óbólusettir í öndunarvél.

Yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala segir smittölur gærdagsins ógnvekjandi.

„En skýringarnar kunna að vera í því að Íslensk erfðagreining kom inn í þetta í gær og afköst veirudeildarinnar hafa aukist vegna þess að það var bilun. Þannig ég held að við séum að klára það sem hafði safnast upp en engu að síður er þetta talsverð fjölgun sem er uggvænlegt,“ sagði Már Kristjánsson.

Faraldurinn sé í veldisvexti og staðan á Landspítala þyngist dag frá degi.

Ekki áhættulaust að stytta einangrun

Nú þurfa smitaðir aðeins að vera í sjö daga einangrun í stað tíu daga eftir að reglum var breytt. Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar telur skynsamlegt að stytta einangrunartímann niður í fimm daga. Már segir að fara þurfi hægt í þessum efnum. 

Fólk sem smitaðist af fyrsta afbrigði veirunnar eða Alfa afbrigðinu gat verið smitandi í átta til tíu daga. Það virðist sem svo að þeir sem smitist af ómíkron afbrigðinu smiti þó í styttri tíma.

„Ameríska heilbrigðisstofnunin hefur farið niður í fimm daga og það kann að vera skynsamlegt að gera það. Ég held að áhættan, fimm dagar, sjö dagar, sé tiltölulega lítil en hún er ekki núll.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×