Norðlæg átt, strekkingur og él austanlands en annars hægara Atli Ísleifsson skrifar 4. janúar 2022 07:12 Aðfaranótt fimmtudags gengur illviðrið norðaustur yfir landið, en fer síðan að ganga niður er líður á daginn. Vísir/Vilhelm Spáð er norðlægri átt, strekkingi og dálitlum éljum austanlands fram eftir morgni, en annars mun hægari og bjartviðri. Talsvert frost á öllu landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði austlægari vindar og bjartviðri síðdegis, kaldi suðvestan til, en annars hægari. „Á morgun gengur dálítið lægðardrag norðaustur yfir landið og því fylgir allhvöss eða hvöss suðaustanátt með úrkomu í formi rigningar eða slyddu sunnan og vestan til. Jafnframt nálgast dýpkandi lægð hröðum skrefum sunnan úr hafi og um kvöldið gengur í suðaustanstorm eða -rok með talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu. Aðfaranótt fimmtudags gengur illviðrið norðaustur yfir landið, en fer síðan að ganga niður er líður á daginn. Hvassviðri og úrkoma á morgun og fimmtudag getur valdið vandræðum í umferð á vegum og víðar og því ekki ólíklegt að sendar verði út veðurviðvaranir. Þeir sem erui á ferðinni þá eru hvattir til að kynna sér vel ástand vega og veðurspár áður en lagt er af stað,“ segir færslunni. Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðaustan 10-18 m/s og rigning eða snjókoma með köflum, hiti kringum frostmark. Hægari vindur á NA-verðu landinu og lengst af þurrt og svalt í veðri. Gengur í suðaustanhvassviðri eða -storm um kvöldið með talsverðri rigningu syðra og hlýnandi veðri. Á fimmtudag: Sunnan og suðaustan 18-25 m/s og rigning eða slydda með köflum, en talsverð úrkoma SA-lands. Hiti 1 til 6 stig. Dregur úr vindi seinnipartinn, kólnar og styttir upp N-lands. Á föstudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og rigning eða slydda með köflum á S- og V-landi með hita 1 til 5 stig. Þurrt um landið NA-vert og hiti við frostmark. Vaxandi suðaustanátt um kvöldið með aukinni rigningu S-til. Á laugardag: Snýst í hæga suðlæga átt með lítilsháttar rigningu eða snjókomu, en austanstrekkingur með N- og A-ströndinni fram eftir degi. Hiti kringum frostmark. Á sunnudag: Útlit fyrir vaxandi suðaustan og síðan suðvestlæga átt með rigningu eða slyddu víða um land. Á mánudag: Líklega fremur hæg suðlæg átt með skúrum eða éljum og svölu veðri.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira