Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Klukkan hálfsjö til að geta lagt af stað í vinnu uppúr klukkan sjö og verið mætt í vinnu klukkan átta. Því ég bý á á Suðurnesjunum svo það er aðeins lengra í vinnuna hjá mér en hjá mörgum.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Er að reyna að temja mér að liggja aðeins kyrr í rúminu í ró og næði áður en ég fer á fætur. Er frekar ör, margir geta víst vottað það en ég er að reyna hina ýmsu hluti til að róa mig aðeins.
Ég hef líka nokkuð nýlega sett mér það markmið að vera meiri pæja, sem er bæði bara gaman, en bónusinn við það er að það tekur mann lengri tíma að hafa sig til á morgnana, sem hjálpar manni að taka það aðeins rólegar.
Maður getur ekki flýtt sér ef maður ætlar ekki að vera með maskara niður á kinnar.“
Setur þú þér almennt markmið um áramót og ef já, hvernig gengur þér að standa við þau?
„Nei.
Ég hef komist að því að þessi hefðbundna markmiðasetning virkar ekki fyrir mig. Hún stuðar mig miklu frekar en hvetur, og ég er nokkuð viss um að ég hef ekkert komist neitt styttra í lífinu án hennar.
Ég sé frekar fyrir mér hvert ég vil fara og hvar ég vil vera og reyni að sjá skrefin þangað án sérstakra mælinga eða tímasetninga. Það er mun meira hvetjandi fyrir mig og hefur virkað vel. Það er líka þannig að ef maður hefur ákveðinn tíma þá fyllir maður alltaf upp í hann og notar hann í botn.

Ég held að ég geri hlutina oft mun fyrr af því að mig langar það, en ekki af því að ég er með tímasetningu á því. Ég er líka að reyna að vera duglegri að brjóta skrefin niður í minni bita og muna að maður borðar bara fílinn einn bita í einu. Er meira að segja með mynd af fíl sem búið er að taka bita úr eyranu af í símanum þegar hann er læstur. Sko, krúttlegum teiknuðum fíl, ekki raunverulegum. Það væri ekkert voða girnilegt!“
Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Meginverkefnið mitt þessa dagana er að læra, taka til og skipuleggja. Það er stórt verkefni að taka við markaðsstarfi í svona umfangsmiklu og fjölbreyttu fyrirtæki eins og BYKO og margt að setja sig inn í. Það á vel við mig að koma inn og taka til í hlutunum og í vinnu get ég verið skipulagsfrík sem kemur sér oft vel.
Það vill til að ég gæti ekki verið heppnari með teymið mitt sem hefur tekið mér opnum örmum, hefur hjálpað mér í lærdómnum og stutt mig dyggilega. Yrði að minnsta kosti tvöfalt ef ekki þrefalt lengur að koma mér inn í hlutina ef þeirra nyti ekki við. Þau eru líka óendanlega þolinmóð við mig í öllu kaosinu sem fylgir því að vera með nýjan yfirmann sem er að koma sér inn í hlutina.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
,,Ég er listasjúk fyrir það fyrsta. Og ég elska Asana. Þar get ég listað yfir mig ooog svo fengið að sjá hlutina í Gantt tímalínu. Elska það!
Já, ég er nörd. En ég þarf líka „analogue“ leiðir.
Stór tússtafla er æði, post-it miðar líka, það er svo auðvelt að færa þá til. Ég er að bíða eftir að einhver geri umhverfisvæna margnota post-it miða – til dæmis bara mjúka segla sem hægt er að nota á töflu. Þangað til verða þessir gömlu góðu bara að duga og ég passa að setja þá í endurvinnslutunnuna þegar þeir hafa þjónað tilgangi sínum.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Of seint. Alltof gjörn á að geta ekki hætt að horfa á spennandi þætti, sofna hættulega oft í sófanum og algengur tími að vera komin í rúmið er um miðnætti. Maðurinn minn er líka nátthrafn sem hjálpar ekki.
En batnandi konum er best að lifa. Alveg eins og ég æfi mig að vera rólegri þá er ég líka að æfa mig að fara á skynsamlegum tíma að sofa, og að fara alltaf að sofa á sama tíma.
Er að æfa mig að gera mig klára í svefninn upp úr hálf ellefu og vera komin upp í um ellefu. Hef ekki sett mér markmið, en sé fyrir mér að sofna vært á koddanum og vakna endurnærð á morgnana og tek þetta síðan bara einn bita í einu.“