Atvinnulíf

Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK sam­setningar

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Brynja Guðjónsdóttir,forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, segir morgnana geta verið mikla áskorun. Eftir sturtuna er að ná fjölskyldunni framúr, þar af tvær dætur og eitt baðherbergi þannig að pabbinn þarf bara að reyna að skjótast þangað inn á milli.
Brynja Guðjónsdóttir,forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, segir morgnana geta verið mikla áskorun. Eftir sturtuna er að ná fjölskyldunni framúr, þar af tvær dætur og eitt baðherbergi þannig að pabbinn þarf bara að reyna að skjótast þangað inn á milli. Vísir/Anton Brink

Brynja Guðjónsdóttir, forstöðukona þjónustu- og markaðsmála hjá Orkunni, er afrekskona í Ikea- og JYSK samsetningu. Brynja segir morgnana heima hjá sér hálfgerðan sirkus. Eða jafnvel morgunlottó.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna alltaf fyrst á mínu heimili eða klukkan sjö og byrja á sturtu.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

Svo byrjar sirkusinn. 

Eftir sturtu fer ég í að draga fjölskylduna fram úr rúminu. Það að allir klári sín morgunverkefni getur verið mikil áskorun eða minnsta mál í heimi, þetta er ákveðið morgunlottó myndi ég segja. 

Við eigum tvær dætur og bara eitt baðherbergi svo ég reyni að vera á undan stelpunum að klára að græja mig áður en þær koma til að greiða sér. Maðurinn minn laumar sér einhvers staðar inn á milli þegar tækifæri gefst.

Ég er ekki að stressa mig mikið á að ná fyrsta kaffibollanum heima því ég er tiltölulega nýbyrjuð að drekka kaffi. Ég er enn þá að venjast bragðinu af kaffi og finnst það í raun ekkert ofsalega gott nema ég flói mjólk og setji síróp út í. Ég grínast oft með að ég sé enn þá að gera mér krakkakaffi.

Hvaða einkunn gefur þú sjálfri þér fyrir samsetningu á Ikea-húsgögnum, JYSK eða sambærilegum munum?

„Topp einkunn. Níu komma fimm! Mér finnst ekkert mál að setja húsgögnin saman og líður eins og húsgagnasmið þegar ég klára verkefnið. Eina sem ég þarf er góð tónlist og góð verkfæri og ég get dúllað mér í þessu eins lengi og þarf. 

Fer ekki upp í tíu af því að það hefur komið fyrir að ein og ein skrúfa gleymist.“

Brynja leggur áherslu á að forgangsraða og segir lykilinn til þess vera að spyrja réttu spurninganna. Brynju finnst gott að byrja vinnudaginn á að fara yfir dagskrá og dagatal. Það gefi tilfinningu fyrir deginum sem þó geti breyst hratt. Vísir/Anton Brink

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Haltu þínu striki á minn hug og hjarta þessa dagana, ég elska þetta verkefni! Ég hef komið að alls konar verkefnum á vinnumarkaði í gegnum tíðina en þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef unnið að.

Hugmyndin kom hjá starfsfólki og byrjaði í raun sem lítil pæling um hvernig við gætum skapað meiri og áþreifanlegri ávinning fyrir viðskiptavini okkar. Svo fór hugmyndin að vinda upp á sig og við mótuðum hana áfram þar til hún varð að þessu verkefni Haltu þínu striki sem fór í loftið í mars síðastliðnum.

Svo er auðvitað gaman að sjá svona hugmyndir verða að veruleika frá því hún kviknar. Það er eitthvað alveg sérstakt við að sjá verkefni sem byrjaði sem lítil pæling verða að upplifun sem viðskiptavinir eru farnir að taka þátt í og mæla með.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Í vinnunni hjá mér skiptir miklu máli að forgangsraða. 

Mér finnst best að byrja morgnana á að fara yfir dagsdagskrár og dagatalið, sjá hvaða fundir eru bókaðir og fá tilfinningu fyrir því hvernig dagurinn lítur út. 

Það eru alltaf mörg mál á verkefnaborðinu á hverjum degi og staðan á þeim getur breyst hratt. 

Mér finnst mikilvægt að spyrja réttu spurninganna eða vera með eyrun opin og hlusta eftir stöðu mála á hverjum degi til að meta hvað á að fara efst á listann.

Ég elska gott skipulag í kringum heimilislífið og vinnulífið, gera plön og lista til að undirbúa það sem er fram undan, en að mínu mati er það bara ramminn.

Vinnumenningin okkar hjá Orkunni er líka orkumikil og geta dagarnir breyst hratt svo það er gott að vera sveigjanleg í öllum plönum og geta tekið hundrað og áttatíu gráðu beygju ef þörf er á.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Mig hefur alltaf langað til að vera komin upp í rúm klukkan tíu og sofnuð klukkan ellefu, en ég held ég hafi aldrei náð því. Ég á það til að fara með hausinn á flug á kvöldin í öllum þeim fjölbreyttu verkefnum í lífinu og er því yfirleitt aldrei komin upp í rúm fyrr en klukkan hálftólf eða um miðnætti. 

En ég er mjög fljót að sofna og er ekki manneskja sem liggur andvaka þó að það sé mikið í gangi hjá mér, í staðinn tek ég það sem hvílir á mér með mér inn í drauminn. 

Maðurinn minn gerir oft grín að því að ég klári augljóslega alla orkuna mína yfir daginn, því þegar ég leggst á koddann þá bara loka ég augunum og er sofnuð, það þýðir ekkert að reyna að spjalla við mig á þeim tímapunkti.“


Tengdar fréttir

Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef...

Ásmundur Tryggvason, forstjóri Styrkás, sér um hafragrautinn í þrautþjálfaðri fjölskyldurútínu á morgnana. Ef hann þyrfti að velja einn lit til að klæðast út ævina, væri það rauður. Enda vel skiljanlegt þegar það er útskýrt nánar.

„Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!”

Elísabet Ósk Guðjónsdóttir, mannauðsstjóri hjá ECIT, segir brúðkaupsundirbúning aðeins raska svefnrútínunni þessar vikurnar en með fjórar ungar stúlkur á heimili og hund ná skötuhjúin sínum dekurstundum með einkaþjálfara í ræktinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×