Innlent

1.175 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Mikill fjöldi fólks hefur mætt í sýnatöku á Suðurlandsbraut í Reykjavík síðustu daga.
Mikill fjöldi fólks hefur mætt í sýnatöku á Suðurlandsbraut í Reykjavík síðustu daga. Vísir/Sigurjón

1.175 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 102 á landamærunum.

Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 10.161 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 9.468 í gær. 8.084 eru nú í sóttkví, en voru 7.876 í gær. 583 eru nú í skimunarsóttkví.

Á vef Landspítalans sagði í morgun að 37 sjúklingar liggi nú inni á sjúkrahúsi með Covid-19, en voru 32 í gær. Átta eru á gjörgæslu, en voru sjö í gær. Fimm eru í öndunarvél.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 3.405, en var 3.206,7 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 360, samanborið við 343,1 í gær.

Alls hafa 36.447 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. 39 hafa látist á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins.

Tekið er fram á covid.is að unnið sé að breytingum á síðunni og verði upplýsingar í gröfum næst uppfærðar næstkomandi þriðjudag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×