Þrír smitaðir í íslenska liðinu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 19. janúar 2022 20:21 Björgvin Páll er kominn með covid og faðmar hér Viktor Gísla sem tekur við í markinu. vísir/epa Það berast ekki góð tíðindi úr herbúðum strákanna okkar kvöldið fyrir fyrsta leik í milliriðli. Þrír leikmenn liðsins eru komnir með Covid.
Þetta eru þeir Björgvin Páll Gústavsson, Elvar Örn Jónsson og Ólafur Andrés Guðmundsson. Þeir fengu allir jákvætt úr PCR-prófi í kvöld og eru komnir í einangrun. Þeir spila því eðli málsins samkvæmt ekki með liðinu annað kvöld og verður erfitt fyrir þá að ná fleiri leikjum á mótinu. Leikmennirnir eru allir með lítil einkenni. Ekki verður kallað á aðra leikmenn í þeirra stað enda eru fjórir úr hópnum upp í stúku nú þegar. Það eru Ágúst Elí Björgvinsson markvörður sem kemur inn í stað Björgvins Páls. Svo eru líka utan hóps Kristján Örn Kristjánsson, Elvar Ásgeirsson og Daníel Þór Ingason. Þessi niðurstaða er gríðarleg vonbrigði fyrir íslenska hópinn sem hefur lagt mikið á sig til að vernda búbbluna sína og verið í einangrun nánast frá áramótum.Leikmenn á EM eru prófaðir tvisvar sinnum á dag. Eitt hraðpróf og eitt PCR-próf. Við skulum vona að veiran hafi ekki náð frekari útbreiðslu í hópnum. Ísland spilar við heimsmeistara Dana annað kvöld í fyrsta leik í milliriðli. Yfirlýsing HSÍ: Í morgun fóru strákarnir okkar í hefðbundið hraðpróf og PCR próf hjá mótshöldurum. Við greiningu sýna komu í ljós 3 jákvæð sýni og eru viðkomandi leikmenn komnir í einangrun en með mjög lítil einkenni. Leikmennir sem um ræðir eru Björgvin Páll Gústavsson, Elvar Örn Jónsson og Ólafur Andrés Guðmundsson. Ekki verður kallað á nýja leikmenn í leikmannahópinn að sinni. Nánari upplýsingar verða gefnar á morgun, fimmtudag.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira