Fótbolti

Willum Þór tryggði hvít-rússneska liðinu jafntefli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Willum Þór Willumsson átti góða innkomu í dag.
Willum Þór Willumsson átti góða innkomu í dag. EPA-EFE/Tamas Vasvari

Willum Þór Willumsson kom BATE Borisov til bjargar þegar liðið gerði 1-1 jafntefli á móti Torpedo Zhodino í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum hvít-rússnesku bikarkeppninnar.

Willum byrjaði á bekknum en kom inn á í hálfleik þegar BATE var 1-0 undir. Torpedo Zhodino skoraði fyrsta mark leiksins strax á fimmtu mínútu og það skoraði Evgeni Berezkin.

Willum tókst að jafna metin á 67. mínútu leiksins.

Willum Þór hefur verið að glíma við meiðsli og það var því frábært fyrir hann að koma inn á og skora mark.

Þetta var hans fyrsti leikur eftir að keppni hófst á ný eftir vetrarfrí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×