„Ef maður fær galopið skot í horninu í jöfnum leik lætur maður það fljúga“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. mars 2022 22:50 Davíð Arnar Ágústsson var ómetanlegur fyrir Þór Þ. á lokakaflanum. vísir/bára Davíð Arnar Ágústsson setti niður tvö stór skot undir lokin þegar Þór Þ. vann Val í undanúrslitum VÍS-bikarsins í körfubolta í kvöld. Leikurinn var mjög jafn en Þórsarar höfðu sigur á endanum. „
Þetta er bara eitt skot sem dettur og annað sem dettur ekki. Við settum niður tvö stór skot undir lokin á meðan þeir klikkuðu. Þetta var bara jafn leikur tveggja mjög góðra liða,“ sagði Davíð við Vísi eftir leik. Hann var ískaldur undir lokin og setti niður tvö stór skot. „Ef maður fær möguleika verður maður að negla þessu niður. Þetta eru augnablikin og ástæðan fyrir því að maður er í körfubolta, að fá þessa leiki. Og ef maður fær galopið skot í horninu í jöfnum leik lætur maður það fljúga.“ Þór var lengst af með frumkvæðið í leiknum en Valur komst yfir, 75-76, þegar þrjár og hálf mínúta var eftir. Þórsarar svöruðu því með sjö stigum í röð. „Þetta var mjög kaflaskipt. Við vorum sex stigum yfir en þá skoruðu þeir sjö stig í röð. Við tókum leikhlé og komust aftur sex stigum yfir. Þetta voru tvö góð lið, góðir leikmenn og skemmtilegur leikur,“ sagði Davíð. Þórsarar eru Íslandsmeistarar og geta bætt bikarmeistaratitli í safnið með sigri á Stjörnumönnum á laugardaginn. „Við erum í þessu til að vinna titla. Við byrjuðum á því síðasta sumar og þá er bara að halda því áfram. Það er mjög gaman að vinna titil,“ sagði Davíð að lokum.
Subway-deild karla Íslenski körfuboltinn Þór Þorlákshöfn Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjá meira