„Í dag má búast við hinu ágætasta veðri“ Atli Ísleifsson skrifar 30. mars 2022 07:10 Hiti eitt til sex stig á sunnanverðu landinu að deginum, en vægt frost annars staðar. Vísir/Vilhelm „Í dag má búast við hinu ágætasta veðri.“ Þannig hefst dagleg hugleiðing veðurfræðings á vef Veðurstofunnar í dag.
Reikna má með suðlægri átt, víða þremur til átta metrum á sekúndu, en hvassari syðst í fyrstu. Víða verður bjartviðri, en smá él við austurströndina. Þá þykknar upp vestantil um kvöldið. Hiti verður á bilinu eitt til sex stig á sunnanverðu landinu að deginum, en vægt frost annars staðar. Víða næturfrost. „Skúrir S- og V-lands á morgun, en slydduél eða él fyrir norðan, annars úrkomulítið,“ segir á vef Veðurstofunnar. Afsakar sólarleysið Í hugleiðingum veðurfræðings segir ennfremur að einhverjir hafi verið vongóðir um að sólin myndi skína glatt í gær en almennt séu skýjahuluspár minnst ábyggilegu spáafurðir sem veðurfræðingar vinni með. „Samt sem áður hafa þær batnað stórlega á síðustu árum, en almennt standa þær sig best þegar skil nálgast landið en eins og í gær ekkert sérstakar þegar langt er í næstu lægð og eða skil. Stundum vantar aðeins herslumuninn að sólin nái að bræða af skýjahuluna og til marks um það þá mældust rúmlega 3 klukkustunda sólskin á sólarmæli Veðurstofunnar í gær. Svo má alveg gera sér vonir að dagurinn í dag geri enn betur.“ Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálitlar skúrir eða él, en lengst af þurrt fyrir austan. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig að deginum. Á föstudag: Hæg suðlæg átt og dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að mestu A-lands. Hiti 0 til 8 stig, mildast syðst. Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt og dálítil él fyrir norðan, en suðvestlæg att og úrkomulítið syðra. Vægt frost NA-til, en annars 1 til 7 stiga hiti, mildast S-lands. Á sunnudag: Gengur í sunnanátt með rigningu og hlýnandi veðri, en snjókoma og vægt frost á NA- og A-landi. Á mánudag: Norðaustlæg átt og él fyrir norðan og austan en þurrt syðra og milt að deginum. Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt með vætu sunnan- og vestantil, en þurrt að kalla um landið NA-vert. Heldur hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Fjársöfnunin á borð lögreglu í enn eitt skiptið Innlent Ingibjörg æf vegna bókunar meirihlutans í borginni Innlent Bað Pútín um að hlífa hermönnum sem enginn kannast við Erlent Reyndu að þvinga mann til að taka úr hraðbanka Innlent Fimmti úrskurðaður í varðhald Innlent Best að sleppa áfenginu alveg Innlent Dregur ummælin til baka og biðst afsökunar Innlent Svara fyrir hylmingu í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Innlent Saka Norðmenn um hervæðingu Svalbarða Erlent Segir ummæli Ásthildar Lóu ekki samræmast stöðu hennar Innlent Fleiri fréttir Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Öflug lægð nálgast landið Viðvaranir í gildi og vætusamt víða um land Lægðagangur og umhleypingar næstu daga Él sunnan- og vestanlands og hvessir í kvöld Von á stormi Frost að sjö stigum og von á næstu lægð Éljagangur sunnan- og vestantil seinni partinn Norðanátt og frystir smám saman Rigningarveður í kortunum Slydda og snjókoma fyrir norðan Útlit fyrir talsverða rigningu Mögulegt hvassviðri fyrir sunnan Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Allhvass vindur sunnantil og dálítil væta Víðast skúrir og él og herðir á vindi í kvöld Úrhellisrigning á Vesturlandi Gular viðvaranir og ekkert ferðaveður Sjá meira