Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 30. mars 2022 22:43 Öll hlutu þau tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum. Vísir Hljómsveitin FLOTT og Mono Town, rapparinn Birnir og tónlistarkonurnar Bríet og Anna Gréta Sigurðardóttir hlutu öll tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaunin sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Hörpu fyrr í kvöld.
Valgerður Guðnadóttir, söng- og leikkona, veislustýrði ásamt Guðmundi Felixsyni leikara. Hljómsveitirnar BSÍ og FLOTT stigu á stokk, sem og píanóleikarinn Magnús Jóhann, rapparinn Birnir og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Lilja Alfreðsdóttir ráðherra menningar- og viðskipta afhenti heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna og píanóleikarinn Anna Guðný Guðmundsdóttir var valin heiðursverðlaunahafi ársins. Þá afhenti Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands björtustu vonum íslenskrar tónlistarflóru verðlaunin í ár. Birnir með bestu rappplötu ársins Hljómsveitin FLOTT var valin bjartasta vonin í flokki popp, rokk, rapp, hipp hopp og raftónlistar og hljómsveitin hlaut þar að auki verðlaun fyrir lag ársins „Mér er drull.“ Þá hlaut hljómsveitin Mono Town verðlaun fyrir rokkplötu ársins og sem lagahöfundur ársins í áðurnefndum flokki. Rapparinn Birnir fékk verðlaun fyrir bestu plötu ársins í flokki rapp og hipp hop með plötunni Bushido auk rapplags ársins með laginu „Vogur“ af fyrrnefndri plötu. Þá fékk djasspíanistinn og tónlistarkonan Anna Gréta Sigurðardóttir verðlaun fyrir plötu ársins í flokki djass- og blústónlistar auk verðlauna sem lagahöfundur ársins í sama flokki. Verðlaunahafar Íslensku tónlistarverðlaunanna 2022: POPP, ROKK, RAPP & HIPP HOPP OG RAFTÓNLIST POPP - PLATA ÁRSINS Mobile Home - GusGus ROKK - PLATA ÁRSINS Mono Town Time Vol. I - Mono Town RAPP&HIPPHOPP - PLATA ÁRSINS Bushido - Birnir RAFTÓNLIST - PLATA ÁRSINS radio vatican - sideproject POPP - LAG ÁRSINS Mér er drull - FLOTT ROKK - LAG ÁRSINS Vesturbæjar Beach - BSÍ RAPP&HIPPHOPP - LAG ÁRSINS Vogur - Birnir RAFTÓNLIST - LAG ÁRSINS Halda áfram - russian.girls TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS Kveðja, Bríet - Útgáfutónleikar í Eldborg TEXTAHÖFUNDUR ÁRSINS Teitur Magnússon LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS Mono Town SÖNGUR ÁRSINS John William Grant TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS Bríet Ísis Elfar BJARTASTA VONIN Í SAMVINNU VIÐ RÁS 2 FLOTT SÍGILD OG SAMTÍMATÓNLIST PLATA ÁRSINS Ethereality - Berglind María Tómasdóttir TÓNVERK ÁRSINS CATAMORPHOSIS - Anna Þorvaldsdóttir TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – HÁTÍÐIR Björk Orkestral, Live from Reykjavík TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS – TÓNLEIKAR Óperan KOK – Þórunn Gréta Sigurðardóttir SÖNGUR ÁRSINS Herdís Anna Jónasdóttir TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR Víkingur Heiðar Ólafsson TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR Mótettukórinn BJARTASTA VONIN Rannveig Marta Sarc DJASS- OG BLÚSTÓNLIST PLATA ÁRSINS Nightjar in the Northern Sky - Anna Gréta TÓNVERK ÁRSINS Hlýnun - Tumi Árnason LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS Anna Gréta TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS - EINSTAKLINGAR Magnús Trygvason Eliassen TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS – HÓPAR Hljómsveit Sigmars Þórs Matthíassonar TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS Tónleikaröð á Skuggabaldri BJARTASTA VONIN Hróðmar Sigurðsson ÖNNUR TÓNLIST: OPINN FLOKKUR, ÞJÓÐLAGA- OG HEIMSTÓNLIST, KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST PLATA ÁRSINS – KVIKMYNDA- OG LEIKHÚSTÓNLIST Y: The Last Man - Herdís Stefánsdóttir PLATA ÁRSINS – ÞJÓÐLAGATÓNLIST Brek – Brek PLATA ÁRSINS – OPINN FLOKKUR Mother Melancholia - sóley LAG/TÓNVERK ÁRSINS – OPINN FLOKKUR Vertu úlfur, titillag - Emilíana Torrini, Markéta Irglová TÓNLISTARMYNDBAND ÁRSINS Ég er bara að ljúga er það ekki? - Annalísa. Leikstjórn: Annalísa Hermannsdóttir Klippa: Annalísa - Ég er bara að ljúga er það ekki? PLÖTUUMSLAG ÁRSINS Án tillits - Magnús Jóhann & Skúli Sverrisson. Hönnun: Halldór Eldjárn Án tillits með Magnúsi Jóhanni og Skúla Sverrissyni. UPPTÖKUSTJÓRN ÁRSINS Ox - Gyða Valtýsdóttir. Upptökustjórn: Gyða Valtýsdóttir og Úlfur Hansson
Tónlist Íslensku tónlistarverðlaunin Tengdar fréttir Damon Albarn tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna Damon Albarn er á meðal þeirra sem hljóta tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár. Damon, sem gerði garðinn frægan með Blur og síðar Gorillaz er nú orðinn íslenskur ríkisborgari. 17. mars 2022 17:52 Mest lesið Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Tónlist Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Bíó og sjónvarp Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Lífið Fleiri fréttir Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Lifa í draumi og heiðra Eyfa Laufey djammaði með Robyn og Troy Sivan HAM boða endalok alls Ein langlífasta tónlistarhátíð landsins hefst í sautjánda sinn Afþakkar Grammy-tilnefningu Miley losar sig við eftirnafnið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Sjá meira
Damon Albarn tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna Damon Albarn er á meðal þeirra sem hljóta tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár. Damon, sem gerði garðinn frægan með Blur og síðar Gorillaz er nú orðinn íslenskur ríkisborgari. 17. mars 2022 17:52