Fótbolti

Willum lagði upp í öruggum sigri BATE

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Willum Þór Willumsson og félagar hans í BATE Borisov hafa unnið báða leiki sína í upphafi tímabilsins.
Willum Þór Willumsson og félagar hans í BATE Borisov hafa unnið báða leiki sína í upphafi tímabilsins. EPA-EFE/Tamas Vasvari

Willum Þór Willumsson lagði upp annað mark BATE Borisov er liðið vann öruggan 3-0 útisigur í annarri umferð hvít-rússnesku deildarinnar í fótbolta í kvöld.

Willum var í byrjunarliðið BATE, en liðið tók forystuna strax á 11. mínútu þegar Egor Troyakov varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Stanislav Dragun skoraði annað mark BATE eftir stoðsendingu frá Willum þegar aðeins átta mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma áður en Maksim Volodjko gulltryggði 3-0 sigur liðsins sjö mínútum síðar.

Willum og félagar hafa unnið báða leiki sína á tímabilinu sem er nýhafið í Hvíta-Rússlandi og eru efstir í deildinni með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×