Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunni. Í dag er útlit fyrir norðaustan strekking, en í nótt hefur snjóað eitthvað í flestum landshlutum. Sunnan- og suðvestanlands á hins vegar að létta til með deginum.
„Seint í dag bætir í snjókomuna á Norður- og Austurlandi með allhvössum vindi, geta akstursskilyrði þá orðið erfið. Frost á landinu yfirleitt á bilinu 2 til 7 stig.
Á morgun er spáð norðan kalda eða strekkingi og hvassara í vindstrengjum suðaustanlands. Dálítil él norðaustantil, en þurrt og bjart veður á sunnan- og vestanverðu landinu. Annað kvöld dregur síðan úr vindinum. Þegar lægir eftir kalda norðanátt, þá nær frostið sér oft á strik og búast má við talsverðu frosti aðfaranótt fimmtudags.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Norðan 8-13 m/s, en 13-18 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 7 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn.
Á fimmtudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða þurrt og bjart veður, en stöku él norðaustantil á landinu. Áfram kalt í veðri og sums staðar talsvert næturfrost.
Á föstudag: Breytileg átt 3-8. Skýjað með köflum og stöku él, einkum við ströndina. Frost víða 0 til 4 stig að deginum.
Á laugardag: Suðaustan strekkingur og snjókoma með köflum á vestanverðu landinu. Hægari vindur annars staðar, skýjað með köflum og stöku él. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag: Austlæg átt og líkur á snjókomu á flestum landshlutum, en slyddu syðst. Frost 1 til 5 stig norðantil, en kringum frostmark sunnanlands.
Á mánudag: Austanátt með slyddu eða rigningu sunnanlands, en yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum. Hlýnar í veðri.