Sjáðu hvernig reiðir Víkingar kláruðu Keflvíkinga í fyrri hálfleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. apríl 2022 15:30 Júlíus Magnússon skoraði glæsilegt mark fyrir Víking gegn Keflavík. vísir/bára Eftir tapið óvænta fyrir ÍA sýndu Íslands- og bikarmeistarar Víkings tennurnar gegn Keflavík í Bestu deild karla í gær.
Víkingar sýndu allar sínar bestu hliðar í fyrri hálfleiknum í gær og voru 4-0 yfir að honum loknum. Kristall Máni Ingason kom Víkingi yfir á 11. mínútu og fjórtán mínútum síðar lagði hann upp mark fyrir Nikolaj Hansen, markakóng síðasta tímabils. Kristall var aftur á ferðinni á 39. mínútu þegar hann gaf boltann á Birni Snæ Ingason sem skoraði sitt fyrsta mark fyrir Víking. Júlíus Magnússon skoraði svo fjórða mark Víkings með glæsilegu skoti á lofti í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Staðan því 4-0 í hálfleik. Fátt markvert gerðist í seinni hálfleik fyrir utan að Adam Árni Róbertsson lagaði stöðuna fyrir Keflavík í uppbótartíma. Lokatölur 4-1, Víkingi í vil. Klippa: Víkingur 4-1 Keflavík Eftir leikinn talaði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, um að meistararnir hefðu verið svekktir eftir tapið fyrir ÍA og staðráðnir í að bæta upp fyrir það. „Allt liðið bara svaraði þessu. Það voru allir „on“, maður fann það strax í upphitun að menn vildu svara fyrir mistökin uppi á Skaga og það var smá reiði í mönnum,“ sagði Arnar við Vísi í leikslok. Víkingur hefur unnið tvo leiki og tapað einum á meðan Keflavík hefur tapað öllum þremur leikjum sínum með markatölunni 2-9. Mörkin úr leiknum á Víkingsvelli í gær má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Keflavík ÍF Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig Uppgjörið: ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Uppgjörið: ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: FH - Stjarnan 2-2 | Jafnt í Krikanum Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sjá meira