Viðskipti innlent

Icelandair leigir breið­þotu næstu tvær vikurnar

Atli Ísleifsson skrifar
Vélin er ekki í staðlaðri uppsetningu Icelandair enda um skammtímaleigu að ræða sem kemur upp með skömmum fyrirvara.
Vélin er ekki í staðlaðri uppsetningu Icelandair enda um skammtímaleigu að ræða sem kemur upp með skömmum fyrirvara. Wikipedia Commons/Maxime C-M/

Icelandair hefur gert samning við portúgalska flugrekandann Euro Atlantic um leigu á Boeing 767-300 flugvél sem nýtt verður í millilandaflugi Icelandair næstu vikur.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Icelandair. Þar segir að vélin, sem hafi komið til landsins landsins í gær, verði fyrst og fremst nýtt í Evrópuflug og sé fyrsta flug hennar í leiðakerfi Icelandair klukkan 7:40 í dag til München. Áætlað sé að vélin verði í rekstri Icelandair í um það bil tvær vikur.

„Vélin er ekki í staðlaðri uppsetningu Icelandair enda um skammtímaleigu að ræða sem kemur upp með skömmum fyrirvara. Icelandair mun leitast við að lágmarka áhrif á farþega og verður þessi vél einvörðungu notuð þegar nauðsynlegt er til að halda áætlun. Áhöfn verður skipuð að hluta til starfsfólki Icelandair og starfsfólki Euro Atlantic að hluta.

Flug og ferðaþjónusta hafa farið hratt af stað eftir Covid faraldurinn og eftirspurn hefur margfaldast. Á sama tíma hefur uppbygging innviða til að mæta þessari eftirspurn tekið tíma. Þetta hefur meðal annars komið fram í töfum í afgreiðslu á flugvöllum erlendis vegna manneklu sem hefur valdið talsverðum röskunum á flugi. Þá hefur truflun í aðföngum í kjölfar faraldursins valdið töfum á viðhaldsverkefnum,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Jens Bjarnasyni, framkvæmdastjóra rekstrar hjá Icelandair, að félagið sé með metnaðarfulla flugáætlun í sumar, mikla tíðni og fjölbreytta brottfarartíma innan dagsins til að mæta mikilli eftirspurn eftir flugi og ferðalögum í sumar. 

„Þetta umfang hefur einnig gert okkur kleift að bregðast við þeim röskunum sem hafa orðið á flugi vegna aðstæðna sem hafa skapast eftir faraldurinn og tryggja að farþegar okkar komist sem fyrst á leiðarenda. Hins vegar, þar sem allir innviðir eru þandir til hins ítrasta og tafir hafa orðið á viðhaldi flugvéla, teljum við nauðsynlegt að búa okkur til enn meiri sveigjanleika þegar kemur að flotanum næstu vikurnar. Þetta er mikilvægt til að geta haldið uppi yfirgripsmikilli flugáætlun okkar og til að geta brugðist við ófyrirséðum aðstæðum,“ segir Jens.


Tengdar fréttir

Icelandair hyggst bæta við sig fjórum Boeing 737 MAX þotum

Icelandair hefur undirritað viljayfirlýsingu um kaup á fjórum Boeing 737 MAX flugvélum. Vélarnar eru framleiddar árið 2018 og gert er ráð fyrir að þær verði afhentar haustið 2022. Með þessari viðbót verður félagið með átján 737 MAX vélar í rekstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×