Innlent

„Fast­eigna­markaðurinn er líkast til að taka stakka­skiptum“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Svo virðist sem eitthvað sé að hægjast á fasteignamarkaðnum.
Svo virðist sem eitthvað sé að hægjast á fasteignamarkaðnum. Vísir/Vilhelm

Óverðtryggð lán eru mun hægkvæmari en verðtryggð um þessar mundir, segir í mánaðarskýrslu hagdeildar HMS fyrir júlímánuð. Hlutfall íbúða sem seldist yfir ásettu verði dróst saman í maí og þá fór meðalsölutími íbúða á höfuðborgarsvæðinu úr 35 dögum í 46 daga.

Í samantekt um skýrsluna segir að raunvextir á íbúðalánum séu neikvæð um 2 prósent en lægstu óverðtryggðu vextir séu jákvæðir um 1,89 prósent. Miðað við verðbólguvæntingar séu útlit fyrir að óverðtryggðir vextir verði áfram hagkvæmir á næstu misserum.

„Óverðtryggðir breytilegir vextir á íbúðalánum hafa á síðustu tveimur mánuðum hækkað um 1,55 prósentur hjá Landsbankanum, 1,8 prósentur hjá Arion banka og 2 prósentur hjá Íslandsbanka sem viðbrögð við tveggja prósenta hækkun stýrivaxta,“ segir í samantektinni.

Kaupsamningum um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði úr 436 í 503 á milli apríl og maí. 

Á landinu öllu seldust 52,8 prósent íbúða yfir ásettu verði í maí, samanborið við 54,4 prósent í apríl en á höfuðborgarsvæðinu seldust 59,9 prósent íbúða í fjölbýli yfir ásettu verði, samanborið við 69,2 prósent í apríl.

„Fasteignamarkaðurinn er líkast til að taka stakkaskiptum um þessar mundir. Seðlabanki Íslands hefur hækkað stýrivexti um 2 prósentustig frá því í byrjun maí og hefur auk þess þrengt lánaskilyrði fyrir verðtryggð íbúðalán. Afleiðingar þessara aðgerða er að aðgangur heimila að fjármagni minnkar verulega og færri munu eiga þess kost á að kaupa sér íbúð,“ segir í samantektinni.

„Heimili með 250.000 kr. mánaðarlega greiðslugetu gátu áður en [ný] viðmið voru sett tekið yfir 90 m.kr. verðtryggt lán en geta nú mest tekið 53 m.kr. verðtryggð lán eða 45 kr. óverðtryggð lán.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×