Gular viðvaranir á Suðvesturhorninu á morgun Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 16. ágúst 2022 10:38 Varað er við hvassviðri og rigningu á Suðvesturhorninu og Miðhálendinu á morgun. Vísir/Vilhelm Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suðvesturhornið og Miðhálendið á morgun, miðvikudag. Suðaustan hvassviðri eða stormi og mikilli úrkomu er spáð á svæðinu.
Á Suðurlandi taka viðvaranir gildi klukkan sex í fyrramálið og gilda fram að hádegi. Búast má við Suðaustan hvassviðri eða stormi, 15-23 m/s og rigningu. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll sem náð geta um 30 m/s. Fram kemur á vef Veðurstofunnar að varasamt sé fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni og að ekkert útivistarveður verði á meðan vðrið gengur yfir. Þá var tilkynnt fyrr í dag að lokað verði að gosstöðvunum í Meradölum á morgun vegna veðurs. Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi, Miðhálendinu og við Faxaflóa í fyrramálið.Skjáskot/Veðurstofa Íslands Við Faxaflóa taka viðvaranir gildi klukkan sjö í fyrramálið og gilda til klukkan eitt eftir hádegi. Búast má við suðaustan hvassviðri, 13-20 m/s og rigningu. Þá megi búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll sem náð geti 25 m/s, einkum á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Aftur er varað við að ökutæki sem taka á sig mikinn vind séu á ferðinni og sömuleiðis að ekkert útivistarveður verði. Þá má búast við suðaustan stormi á Miðhálendinu, þar sem viðvaranir taka gildi klukkan sjö í fyrramálið og gilda til klukkan 17 síðdegis. Vindur verði á bilinu 18-25 m/s og búast megi við snörpum vindhviðum við fjöll sem nái um 35 m/s. Hvassast verði í hviðum norðvestan jökla og varasamar eða hættulegar aðstæður geti skapast fyrir ferðamenn og útivistarfólk.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Sjá meira