Íslenski boltinn

Sjáðu öll mörkin sem voru skoruð í Bestu deildinni um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frá leik Breiðabliks og KR um helgina þar sem KR-ingar sóttu þrjú stig í Smárann.
Frá leik Breiðabliks og KR um helgina þar sem KR-ingar sóttu þrjú stig í Smárann. Vísir/Diego

Þriðja síðasta umferð tímabilsins í Bestu deildinni fór fram um helgina og þar voru skoruð samtals 21 mark.

Lið Vals og KR fögnuðu sigri í efri hlutunum þar sem ekkert að þremur efstu liðunum náðu að fagna sigri í umferðinni því Blikar töpuðu á heimavelli og Víkingur og KA gerðu innbyrðis jafntefli.

Alls voru skoruð átta mörk í þessum þremur leikjum í efri hlutanum. Það má sjá þau hér fyrir neðan.

Klippa: Mörkin úr sigri Vals á Stjörnunni
Klippa: Markið úr sigri KR á Breiðabliki
Klippa: Mörkin úr jafntefli Víkings og KA

Lið FH og ÍBV fögnuðu sigri í neðri hlutunum og fóru langt með að bjarga sér. Eyjamenn eru öruggir en eftir tvo sigra í röð hjá FH-ingum þá eru þeir nú fjórum stigum frá fallsæti þegar bara sex stig eru eftir í pottinum.

Alls voru skoruð þrettán mörk í þessum þremur leikjum í efri hlutanum. Það má sjá þau hér fyrir neðan.

Klippa: Mörkin úr sigri ÍBV á Fram
Klippa: Mörkin úr sigri FH á Keflavík
Klippa: Mörkin úr jafntefli Leiknis og ÍA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×