Innlent

Tveggja ára dómur fyrir vændiskaup og alvarlegar líkamsárásir

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Landsréttur kvað upp dóm sinn í dag.
Landsréttur kvað upp dóm sinn í dag. Vísir/Vilhelm

Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa greitt fyrir vændi, beitt tvær konur alvarlegu ofbeldi og brotið gegn valdstjórninni.  Landsréttur sneri hins vegar við niðurstöðu héraðsdóms sem hafði sakfellt manninn fyrir tilraun til nauðgunar vegna óskýrleika í ákæru. Aukinheldur féllst rétturinn ekki á niðurstöðu héraðsdóms um að ofbeldi hans gagnvart kærustu sinni teldist til ofbeldis í nánu sambandi. 

Í dómi Landsréttar voru tekin fyrir brot gegn tveimur konum sem og valdstjórninni. Er hann sakfelldur fyrir að hafa beitt konu ofbeldi með því að veitast að henni og taka hana hálstaki þannig að hún missti meðvitund. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa hótað að drepa brotaþola. Maðurinn játaði að hafa greitt nokkrum sinnum fyrir vændi af konunni. 

Féllst ekki á tilraun til nauðgunar

Í dómnum hafði konan sem maðurinn keypti vændi af lýst því að maðurinn hafi ýtt henni upp á rúm á dvalarstað hennar togað í nærbuxur sem hún klæddist á meðan hann veittist að henni. Einnig lýsti brotaþoli því að maðurinn hefði ýtt henni niður á rúmið og sagt: „Ég verð á fá kynlíf, ég fæ það ekki með munnmökum“. Meðal gagna málsins var símtal konunnar á neyðarmóttöku þar sem heyrist í manninum snöggreiðast er hann áttar sig á því að hún sé að hringja á eftir hjálp. Í dómi héraðsdóms er nánar lýst samskiptum þeirra sem heyrast í símtalinu. 

Héraðsdómur hafði, í samræmi við fyrrgreinda frásögn, sakfellt manninn fyrir tilraun til að nauðga konunni. Landsréttur taldi hins vegar að meintri háttsemi mannsins er laut að tilraun hans til nauðgunar hafi ekki verið lýst í ákærutexta. Var ákæruvaldið talið bera ábyrgð á óskýrleika í ákæru sem var talin til þess fallinn að gera varnir ákærða ábótavant. 

Ósammála um eðli sambands

Þá voru einnig tekin fyrir tvö ofbeldisbrot mannsins gegn konu, annars vegar á heimili hennar og hins vegar á hóteli. Við rannsókn lögreglu var miðað við að konan væri kærasta hans. Í dómi héraðsdóms var maðurinn dæmdur fyrir brot í nánu sambandi en brotaþoli hafði við skýrslutökur lýst því að þau hefðu verið í sambúð. Héraðsdómur taldi ekkert hafa komði fram sem gat stutt þann framburð ákærða að hann hafi verið búsettur. 

Landsréttur var þessu ósammála og vísaði til þess að ákærða og brotaþola hafi ekki borið saman um hvort þau hafi verið í sambúð. Landséttur taldi að samband þeirra hafi verið skammvinnt og að ítrekuð rof hafi verið á því. Var  því ekki talið að slík tengsl hafi myndast að sambandið gæti talist náið. 

Einnig er maðurinn dæmd­ur fyr­ir brot gegn vald­stjórn­inni fyrir að reyna að skalla lög­reglu­mann sem ætlaði að hand­taka hann í apríl 2020. Þá er hann einnig dæmd­ur fyr­ir að hafa bitið lög­reglu­mann í lærið með þeim af­leiðing­um að hann hlaut mar. Í ág­úst sama ár þegar lög­regla sinnti skyldu­störf­um að hand­taka mann­inn sparkaði hann í maga lög­reglu­manns með þeim af­leiðing­um að hann marðist. Þá hrækti hann einnig fram­an í lög­reglu­mann­inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×