Tónlistarmannanafn hans er KÁRI og er tónlistinni lýst sem aðgengilegu og melódísku poppi í vönduðum og fjölbreyttum útsendingum. Kári byrjaði tónlistarferil sinn á píanónámi sem hófst í klassíkinni en hefur fært sig út í bæði djass og popp.

„Something Better er notalegt lag undir léttum bossa nova áhrifum og Moonbeams er angurvær ballaða,“ segir í fréttatilkynningu. Blaðamaður tók púlsinn á Kára.
„Lögin eru samin á Covid tímanum og eru innhverf,“ segir Kári og bætir við: „Þau eru hvorug glöð en bæði falleg.“
Hann hefur unnið hörðum höndum að plötunni en þar er að finna ólíka tónlistarstíla.
„Platan er fjölbreytt, hún fer um víðan völl og snertir á alls konar mismunandi tónlistarstílum. Í kjarnann er þetta popp en hún fer líka í rokk, soul, r&b og fleira.“

Aðspurður hvert hann stefni í heimi tónlistarinnar segir Kári að lokum:
„Ég ætla að gera eins góða tónlist og ég get og vona að fólk kveiki á því.“
Hér má heyra lögin:
Kári semur lög og texta, syngur, spilar á hljómborð og útsetur fyrir strengi og lúðra. Upptökustjóri er Albert Finnbogason, sem einnig spilar á gítar og bassa í mörgum lögum. Í Moonbeams má heyra Gyðu Valtýsdóttir á selló og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Platan var tekin upp í Sundlauginni í Mosfellsbæ og í stúdíói Alberts Finnbogasonar.