Þetta er fyrsta tónleikaferðalag Swift síðan árið 2018 þegar hún fór um víðan völl vegna plötu sinnar „Reputation.“ Dagsetningarnar sem kynntar hafa verið ná aðeins yfir Bandaríkin og virðist sá hluti tónleikaferðalagsins standa yfir frá mars fram í ágúst á næsta ári. Dagsetningar fyrir önnur lönd heimsins hafa ekki verið kynntar að svo staddar en þær eru sagða væntanlegar. Variety greinir frá þessu.
Frá því að hún hélt síðast á tónleikaferðalag hefur Swift gefið út 4 nýjar plötur, þær „Lover,“ „Folklore,“ „Evermore,“ og „Midnights“ ásamt því að hafa einnig gefið út tvær plötur í endurupptöku. Því er óhætt að segja að af nógu sé að taka fyrir Swift þegar hún kemur fram á ný.
Tónlistarfólkið sem mun hita upp fyrir hana á tónleikaferðalaginu er ekki af verri endanum en það eru Haim systur, Hljómsveitin Paramore og Phoebe Bridges ásamt fleirum.
Nýjasta plata Swift „Midnights“ hefur vakið mikla lukku eftir að hún kom út 21. október. Tónlistarkonan hefur til dæmis slegið met hvað varðar fjölda laga í topp tíu sætum Billboard listans en lög hennar af nýju plötunni skipa öll sætin. Þetta er í fyrsta sinn í 64 ára sögu listans sem þetta gerist.