Viðskipti innlent

Arion hagnaðist um fimm milljarða

Samúel Karl Ólason skrifar
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banka. Vísir/Einar

Arion banki hagnaðist um rúma fimm milljarða króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Á sama tímabili árið 2021 var hagnaðurinn rúmir 6,5 milljarðar króna.

Hagnaður á hlut var 3,44 krónur en á fjórða ársfjórðungi 2021 var hann 4,26.  Arion varði 32,3 milljörðum króna í arðgreiðslur og endurkaup eigin bréfa á síðasta ári.

Þá leggur stjórn bankans til að greiddur verði 8,5 krónu arður á hlut, sem samsvarar um 12,5 milljörðum króna.

Heildareignir bankans voru 1.470 milljarðar króna í lok árs 2022, samanborið við 1.314 milljarða í lok 2021. Lán til viðskiptavina jukust um 15,9 prósent á síðasta ári.

Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar um ársfjórðungsuppgjörið hér á vef Arion banka.

Benedikt Gíslason, bankastjóri, segir í yfirlýsingu sem fylgir uppgjörinu að starfsemi bankans hefði gengið vel á síðasta ári, þrátt fyrir krefjandi aðstæður.

„Orkuverð hefur hækkað og verðbólga náð sjaldséðum hæðum í mörgum af okkar nágrannalöndum. Ísland er vissulega fjarri stríðsátökunum en við höfum ekki farið varhluta af þeirri óvissu sem þeim fylgir. Engu að síður var þróttur í íslensku efnahagslífi á árinu og útlit fyrir að hagvöxtur verði um 6-7%, meðal annars í krafti þess að við erum að miklu leyti sjálfbær í orkumálum með okkar grænu vatnsorku og jarðvarma. Arðsemi Arion banka á árinu 2022 var góð og yfir arðsemismarkmiði okkar.

Vaxta- og þóknanatekjur og tekjur af tryggingastarfsemi, sem bankinn hefur skilgreint sem sínar kjarnatekjur, hækkuðu um 17,5%, en krefjandi markaðsaðstæður leiddu til þess að fjármagnstekjur bankans voru neikvæðar um þrjá milljarða. Staða bankans er áfram mjög sterk og eiginfjár- og lausafjárhlutföll vel yfir markmiðum bankans. Tillaga er gerð um 12,5 ma.kr. arðgreiðslu vegna rekstrarársins 2022 og bankinn heldur áfram með endurkaup á eigin bréfum, sem er í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans,“ segir Benedikt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×