Gamla brýnið Warnock hrósaði Jóhanni Berg í hástert Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. febrúar 2023 20:00 Neil Warnock grínast í Vincent Kompany, þjálfara Burnley. Alex Dodd/Getty Images Hinn 74 ára gamli Neil Warnock kallar ekki allt ömmu sína. Hann er í dag þjálfari Huddersfield Town í ensku B-deildinni í knattspyrnu. Um helgina tóku Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley liðið hans Warnock í kennslustund.
Warnock sagðist vera hættur í þjálfun eftir að hann yfirgaf Middlesbrough árið 2021. Hann hóf þjálfaraferilinn árið 1980 og hafði stýrt liðum á borð við Sheffield United, Crystal Palace, Queens Park Rangers, Leeds United og Cardiff City. Hann var svo fenginn til að bjarga Huddersfield frá falli. Sem stendur er liðið í 22. sæti með 31 stig eins og bæði Blackpool og Wigan sem er í sætunum þar fyrir neðan. Öll þrjú liðin eru fjórum stigum frá öruggu sæti. Huddersfield hafði unnið Birmingham í umferðinni á undan áður en liðið mætti Burnley. Þar sá liðið aldrei til sólar og hrósaði Warnock nokkrum leikmönnum liðsins í hástert. Þar á meðal var Jóhann Berg. „Ég hef alltaf elskað Guðmundsson, draumur hvers þjálfara. Fær aldrei hrós þó hann sé 8 af 10 í hverri viku. Það kemur fyrir að hann sé 9 (af 10) en aldrei 6 eða 7. Það er það sem þú þarft, slíkir leikmenn eru gríðarlega mikilvægir þegar lið ætlar að fara upp úr ensku B-deildinni. Þú þarft slíka leikmenn og hann er einn af þeim.“ Þá talaði hann um spennandi vængmenn Burnley og að Ashley Barnes væri að spila líkt og brasilíska goðsögnin Pele. Burnley stefnir hraðbyr á ensku úrvalsdeildina en liðið er á toppi ensku B-deildarinnar með 76 stig að loknum 34 leikjum eða 12 stigum meira en Sheffield United sem er í 2. sætinu og 19 stigum meira en Middlesbrough í 3. sætinu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira