Á annan tug einkafjárfesta keyptu breytanleg skuldabréf á Alvotech
![Róbert Wessmann, forstjóri og stærsti hluthafi Alvotech. Fulltrúar Bandaríska lyfjaeftirlitsins (FDA) komu til landsins í dag til að gera gera endurúttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins og mun sú heimsókn standa yfir til 17. mars. Fáist hún samþykkt áformar félagið að hefja sölu á sínu stærsta lyfi í Bandaríkjunum um mitt þetta ár.](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_713x0.jpg)
Vel yfir tuttugu fjárfestar, einkum verðbréfasjóðir og lífeyrissjóðir, komu að kaupum á breytanlegum skuldabréfum upp á samtals um tíu milljarða sem Alvotech gaf út undir lok síðasta árs en innlendir einkafjárfestar voru um helmingurinn af þeim fjölda, samkvæmt gögnum um þátttakendur í útboðinu. Skuldabréfunum, sem bera 12,5 til 15 prósenta vexti á ársgrundvelli, má breyta yfir í almenn hlutabréf í árslok 2023 á genginu 10 Bandaríkjadalir á hlut en markaðsgengið er nú um 40 prósentum hærra, eða rúmlega 14 dalir.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/274BDE02F5B04A77DC125B7A7449DC580F2F42A15D984052387FE189756E604F_308x200.jpg)
Alvotech tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði
Íslenska líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, verður tekið inn í vísitölu MSCI fyrir vaxtarmarkaði frá og með næstkomandi mánaðarmótum. Það ætti að hafa í för með sér aukna fjárfestingu frá erlendum vísitölusjóðum en Alvotech bíður þess nú sömuleiðis að vera bætt við nýmarkaðsvísitöluna hjá FTSE Russell.