Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Þriðju tilboðsbókinni í sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka var bætt við með lagabreytingum sem samþykktar voru á Alþingi í dag. Sú leið á að auka líkur á að stórir fjárfestar taki þátt í útboðinu án þses að gengi verði á forgang einstaklinga. Viðskipti innlent 8.5.2025 14:22
Alvotech bætir við skráningu í Svíþjóð eftir uppgjör sem var vel yfir væntingum Tekjur og rekstrarhagnaður Alvotech á fyrsta fjórðungi var verulega yfir væntingum greinenda, sem þýddi að hlutabréfaverð félagsins hækkaði um meira en tuttugu prósent í viðskiptum á eftirmarkaði í Bandaríkjunum, og hafa stjórnendur félagsins uppfært nokkuð afkomuspána fyrir árið 2025. Félagið hefur jafnframt boðað skráningu og útboð í Svíþjóð síðar í mánuðinum, sem er aðeins um fjögur hundruð milljónir að stærð og því ekki til að afla nýs hlutafjár, og verður útboðsgengið að hámarki í kringum 1.200 krónur á hlut. Innherji 8.5.2025 09:23
Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Alvotech hagnaðist um tæplega 1,4 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi ársins en tapaði 6,3 milljörðum króna króna á sama tímabili í fyrra. Það gerir tæplega 7,7 milljarða króna viðsnúning milli ára. Félagið hefur hækkað afkomuspá sína aftur eftir að hafa lækkað hana fyrir skömmu. Viðskipti innlent 8.5.2025 08:35
Styrking krónu og verðfall hlutabréfa tók eignir sjóðanna niður um 400 milljarða Innherji 7.5.2025 17:44
Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi Það getur kostað ríflega 20 prósent meira að skipta gjaldeyri hjá fyrirtækinu Change Group, sem er með aðstöðu í Leifstöð, en það myndi kosta að skipta sama gjaldeyri í útibúi íslenskra banka. Þannig sýnir nýlegt dæmi að viðskiptavinur hefði getað fengið rúmum tíu þúsund krónum meira í sinn hlut með því að skipta gjaldeyri í útibúi í bænum frekar en í Leifsstöð. Neytendur 7. maí 2025 09:42
Veiðigjöldin enn rædd en þó ekki á dagskrá í dag Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld á sjávarútvegsfyrirtækin, eitt umdeildasta mál þessa þings, var frestað á Alþingi um klukkan tíu í gærkvöldi. Þingmenn hafa nú rætt málið fram á kvöld tvo daga í röð og sér ekki fyrir endann á. Innlent 7. maí 2025 07:51
„Gróskuhugarfarið hjálpar okkur líka að viðurkenna mistök” „Gróskuhugarfarið tel ég mjög mikilvægt í þessari vegferð. Því við vitum ekki svörin nema með því að prófa okkur áfram, með þá nálgun og hugarfar á öllum stigum að klárlega gerum við mistök á leiðinni sem við þurfum þá að læra af,” segir Þórir Ólafsson, forstöðumaður Stafrænnar þróunar hjá Icelandair. Atvinnulíf 7. maí 2025 07:00
Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Berjaya Hotels Iceland hefur tilkynnt að þau ætli að nýta forleigurétt sinn við Reiti fasteignafélag hf. að Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura hótel er staðsett. Íslandshótel gerðu samning við Reiti í síðasta mánuði um rekstur og leigu til sautján mánaða með þeim fyrirvara að Berjaya hefði forleigurétt. Viðskipti innlent 6. maí 2025 21:40
Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Icelandair flutti 381 þúsund farþega í apríl, 24 prósent fleiri en í apríl 2024. Það sem af er ári hefur félagið flutt yfir 1,2 milljón farþega. Í mánuðinum voru 29 prósent farþega á leið til landsins, 19 prósent frá landinu, 47 prósent voru tengifarþegar og fimm prósent ferðuðust innanlands. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Icelandair. Viðskipti innlent 6. maí 2025 18:08
LSR eigi ekki að „sitja hjá“ við ákvarðanir félaga þar sem sjóðurinn er hluthafi Samtímis víðsjárverðum tímum á alþjóðavettvangi með auknum stríðsrekstri og „uppgangi öfga- og sundrungarafla“ hefur orðið bakslag í umræðu um sjálfbærni, að mati stjórnarformanns LSR, sem hann segir varhugaverða þróun og ganga gegn „eðlilegri skynsemi og öllum meginstraumi vísindalegrar þekkingar.“ Formaðurinn undirstrikar jafnframt að stjórn þessa umsvifamesta lífeyrissjóðs landsins ætli sér ekki að „sitja hjá“ þegar kemur að ákvörðunartöku félaga þar sem LSR er meðal stórra hluthafa. Innherji 6. maí 2025 15:43
Reikningum Flokks fólksins lokað um stund Bankareikningum Flokks fólksins í Arion banka var lokað um stund í aprílmánuði eftir að láðst hafði að fylla út áreiðanleikakönnun í kjölfar þess að flokknum var formlega breytt úr félagsamtökum í stjórnmálasamtök. Reikningarnir hafa verið opnaðir á ný. Innlent 6. maí 2025 12:57
Mjólkurvinnslan Arna metin á milljarð þegar sjóður Stefnis eignaðist meirihluta Mjólkurvinnslan Arna er verðmetin á nærri einn milljarð króna eftir að framtakssjóður í rekstri Stefnis festi kaup á miklum meirihluta í félaginu undir lok síðasta árs, einkum með því að leggja fyrirtækinu til nýtt hlutafé. Kaupverðið getur hækkað nokkuð nái félagið tilteknum rekstrarmarkmiðum á yfirstandandi ári en fyrir skömmu var nýr framkvæmdastjóri ráðinn til að stýra Örnu í stað stofnandans. Innherji 5. maí 2025 17:20
Heimilar samruna og forstjórinn stígur til hliðar Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Samkaupa og Atlögu, áður Heimkaup, en félögin höfðu fengið sérstaka heimild til að byrja að framkvæma sameininguna á meðan hún var til rannsóknar hjá eftirlitinu. Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa undanfarin þrjú ár, segist af því tilefni hafa ákveðið að meta eigin stöðu og því tilkynnt stjórnarformanni að hann ætli að stíga til hliðar. Innherji 5. maí 2025 15:18
Þórdís til dómsmálaráðuneytisins Þórdís Valsdóttir, útvarpsstjóri hjá Sýn, hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins til eins árs. Viðskipti innlent 5. maí 2025 12:22
Eldisfyrirtækið Laxey klárar nærri tuttugu milljarða fjármögnun Landeldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 36 þúsund tonn, hefur lokið við um 35 milljóna evra hlutafjáraukningu ásamt því að gera nýtt langtímasamkomulag við Arion banka um lánsfjármögnun. Félagið stefnir að því að hefja fyrstu slátrun á fiski á haustmánuðum þessa árs sem er í samræmi við upphaflega tímalínu. Innherji 5. maí 2025 10:15
Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Til stendur að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka á næstu vikum, þó markaðsaðstæður séu ekki fullkomnar í kjölfar tollahækkana Bandaríkjaforseta, að sögn fjármálaráðherra. Almenningur mun njóta forgangs í útboðinu þegar það fer loks fram. Viðskipti innlent 4. maí 2025 19:01
Beinn kostnaður Bláa lónsins vegna jarðhræringa nálgast um átta milljarða Lokanir og truflanir vegna ítrekaðra jarðhræringa á Reykjanesskaga frá árslokum 2023 hafa valdið beinum kostnaði fyrir Bláa lónið sem nemur samtals um sjö til átta milljörðum króna, einkum vegna tapaðra tekna og greiddra launa á tímum þegar reksturinn hefur stöðvast. Stjórnarformaður Bláa lónsins segir blikur á lofti varðandi þróun ferðaþjónustunnar á heimsvísu, sem muni að líkindum þýða fækkun ferðamanna til Íslands á þessu ári, og gagnrýnir ráðamenn þjóðarinnar fyrir umræðu sem einkennist alltof oft af því hvernig megi skattleggja atvinnuvegina frekar. Innherji 3. maí 2025 12:57
Tapið minnkaði hjá Akta þegar þóknanatekjur jukust á krefjandi ári á mörkuðum Sjóðastýringarfélagið Akta var rekið með um fimmtíu milljóna tapi á liðnu ári, einkum vegna virðislækkunar á verðbréfaeign, en á sama tíma var nokkur aukning í þóknanatekjum og hreinar eignir í stýringu héldust í horfinu á milli ára. Fjárfestingarsjóðir félagsins áttu mismunandi gengi að fagna á árinu 2024, sem var um margt krefjandi á verðbréfamörkuðum, en á meðan gengislækkun og útflæði var hjá helsta hlutabréfasjóði Akta skiluðu sumir sjóðir ávöxtun umfram keppinauta. Innherji 2. maí 2025 14:25
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. Erlent 1. maí 2025 09:45
Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Flestir bendir til að Icelandair hefji á ný flug til Hornafjarðar í haust eftir að félagið reyndist vera lægstbjóðandi í útboði Vegagerðarinnar. Þetta gæti breytt forsendum þeirrar ákvörðunar Icelandair að hætta Ísafjarðarflugi á næsta ári. Innlent 30. apríl 2025 22:20
Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Hagar hafa ákveðið að hætta söluferli á 40 prósenta eignarhlut Olís í Olíudreifingu ehf. Tilboð sem bárust voru öll undir væntingum. Viðskipti innlent 30. apríl 2025 18:36
Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Stöð 2 mun hætta innanhússframleiðslu á innlendu sjónvarpsefni og einbeita sér fyrst og fremst að samstarfi við framleiðslufyrirtæki. Þetta staðfestir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Miðla og efnisveitna hjá Sýn. Vinsælir þættir hverfi ekki af dagskrá heldur færist vinnsla þeirra til framleiðslufyrirtækja. Innlent 30. apríl 2025 14:59
Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Landsréttur hefur staðfest frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á máli sem Samskip höfðaði gegn Eimskip og Vilhelm Má Þorsteinssyni, forstjóra Eimskips í apríl 2024. Viðskipti innlent 30. apríl 2025 06:12
Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Flugfélagið Play tapaði 26,8 milljónum bandaríkjadala eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en það jafngildir um 3,5 milljörðum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að um framför sé að ræða frá sama tímabili í fyrra þegar tapið var 27,2 milljónir bandaríkjdalir. Viðskipti innlent 29. apríl 2025 17:36
Fjárfestar stækkuðu enn frekar skortstöðu sína í hlutabréfum Alvotech Umfang skortsölu með hlutabréf Alvotech í Nasdaq-kauphöllinni í Bandaríkjunum jókst um fjórðung á fyrstu vikum þessa mánaðar, skömmu eftir birtingu ársuppgjörs og ákvörðunar Bandaríkjaforseta að efna til tollastríðs við umheiminn. Hlutabréfaverð Alvotech, sem er niður um meira en þrjátíu prósent á fáeinum vikum, hefur verið að nálgast sitt lægsta gildi frá því að félaginu var fleytt á markað um sumarið 2022. Innherji 29. apríl 2025 15:40