Howe segir ummæli Ten Hags um tafir Newcastle kjaftæði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. apríl 2023 13:01 Eddie Howe og Erik ten Hag deildu á hliðarlínunni í gær. getty/James Gill Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle United, segir ásakanir Eriks ten Hag, stjóra Manchester United, um að Skjórarnir séu full duglegir við að tefja vera kjaftæði.
Newcastle komst upp fyrir United í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með öruggum sigri, 2-0, í leik liðanna á St James' Park í gær. Joe Willock og Callum Wilson skoruðu mörk heimamanna. Fyrir leikinn sagði Ten Hag að Newcastle-liðið væri pirrandi og hefði tafið hressilega í fyrri leiknum gegn United á Old Trafford. Hann endaði með markalausu jafntefli. Howe gaf ekki mikið fyrir ummæli Ten Hags er hann var spurður út í þau eftir leikinn í gær. „Höfum það á hreinu að við viljum hafa boltann í leik. Við viljum hraðan leik. Ég skil ekki hvaðan þetta tafakjaftæði kemur frá honum. Við vildum fá boltann strax í leik,“ sagði Howe. Þeim Ten Hag lenti aðeins saman í seinni hálfleik þegar United reyndi að koma boltanum fljótt í leik eftir að hafa lent undir. Howe benti Ten Hag þá á að United hefði líka tafið í stöðunni 0-0. Þórðargleðin var við völd hjá umsjónarmanni Twitter-síðu Newcastle í gær en hann skaut tvívegis á United í færslum sínum eins og sjá má hér fyrir neðan. No time-wasting required... — Newcastle United FC (@NUFC) April 2, 2023 Electric. Exciting. Emphatic. Some might even say 'annoying' to play against. Tremendous, Maxi! pic.twitter.com/RAxBJ5kAg4— Newcastle United FC (@NUFC) April 2, 2023 Newcastle og United eru jöfn að stigum í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Skjórarnir eru með hagstæðari markatölu.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira