Innlent

Þrjú inn­brot og hlaupa­hjól með stað­setningar­búnaði

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Vaktin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Vaktin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar um innbrot í gærkvöldi og nótt.

Tilkynnt var um innbrot í heimahús í miðborginni en ekki lá fyrir hvort einhverju hafði verið stolið. Þá bárust tilkynningar um innbrot í verslun og innbrot í bifreið, þar sem veski var stolið úr bifreiðinni.

Lögregla kom einnig til aðstoðar þegar hlaupahjóli var stolið en þannig vildi til að eigandinn hafði komið fyrir staðsetningarbúnaði í hjólinu. Tókst lögreglu að hafa uppi á því með aðstoð eigandans og staðsetningarbúnaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×