Hallarbylting í sóknarnefnd Digraneskirkju á löngum fundi í gær Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. apríl 2023 10:15 Menn voru sammála um að fundurinn hefði verið óvenju vel sóttur... og óvenju langur. Vísir Það bar til tíðinda á aðalsafnaðarfundi Digraneskirkju í gærkvöldi, þar sem öllum tillögum formanns sóknarnefndar um framboð til stjórnar var hafnað og fólk af nýjum lista sem dreift var til fundarmanna kosið þess í stað.
Eins og þekkt er orðið hefur gustað um kirkjuna síðustu misseri í kjölfar ásakana á hendur Gunnari Sigurjónssyni, fyrrverandi sóknarpresti í Digraneskirkju, sem var látinn víkja eftir að óháð teymi Þjóðkirkjunnar komst að þeirri niðurstöðu að Gunnar hefði í tíu tilvikum gerst brotlegur gegn EKKO-reglum kirkjunnar um einelti, kynbundna og kynferðislega áreitni og annað ofbeldi. Athygli vakti í gær að Gunnar mætti á fundinn, sem stóð yfir í nærri fimm klukkustundir. Fundurinn var óvenju fjölmennur en það varð fljótt ljóst að viðstaddir skiptust í tvær fylkingar; þá sem hugðust greiða atkvæði með þeim sem formaður tilnefndi í sóknarnefnd og þeim sem hugðust greiða atkvæði með listanum sem lagður var fram á fundinum. Fráfarandi formaður sóknarnefndar, Valgerður Snæland Jónsdóttir, gerði grein fyrir störfum sóknarnefndar og sagði síðustu mánuði hafa verið afar krefjandi. Vísir Formaður sóknarnefndar, Valgerður Snædal Jónsdóttir, gerði grein fyrir því í upphafi fundar að hún hygðist ekki gefa kost á sér áfram en fyrir fund dreifði hún tveimur erindum til fundarmanna. Annað var dagsett 9. september 2022 og var áskorun til biskups um að Gunnar yrði beðinn afsökunar og boðið starf sitt aftur. Hitt var dagsett 1. mars 2023 og fól í sér áskorun til Kirkjuþings um að aðskilja á ný sóknir og prestaköll Digraneskirkju og Hjallakirkju. Taka ekki afstöðu og horfa til framtíðar Valgerður hefur verið ötull stuðningsmaður Gunnars frá því að málið fór af stað og notið stuðnings meirihluta sóknarnefndar. Á fundinum var greint frá því að kjósa þyrfti þrjá aðalmenn til fjögurra ára og tvo til tveggja ára og fjóra varamenn til fjögurra ára og einn til tveggja ára. Eins og fyrr segir náðu allir menn „nýja framboðsins“ inn og þannig sitja nú aðeins tveir aðalmenn sem tilheyrðu meirihluta Valgerðar og tveir varamenn. Af sjö aðalmönnum og sjö varamönnum eru fimm nýir aðalmenn í sóknarnefnd og fimm nýir varamenn. Spurð um framhaldið í stuttu spjalli eftir kosningarnar, sagði Telma Ýr Birgisdóttir, sem var í forsvari fyrir nýja framboðið, að það stæði ekki til að taka afstöðu til þess sem á undan væri gengið. Þjóðkirkjan hefði komist að niðurstöðu varðandi mál Gunnars og nú stæði til að horfa til framtíðar og byggja upp. Á fundinum var nokkuð rætt um kjörgengi og atkvæðarétt og þá fór einn fundarmanna fram á að frambjóðendur gerðu grein fyrir því hvort þeir tilheyrðu Digranessókn eða Hjallasókn. Ljóst varð að margir höfðu veitt viðstöddum umboð til að fara með atkvæði sitt og eftir að úrslit lágu fyrir voru ekki allir á eitt sáttir um lögmæti framkvæmdarinnar. Sagði Jón Svavarsson, sem bauð sig fram sem aðalmaður en var hafnað, að hann myndi kæra kosninguna. Séra Gunnar Sigurjónsson, sem biskup vék frá störfum í Digraneskirkju, mætti á fundinn í gærkvöldi.Vísir Framkvæmdin hafði verið borin undir Biskupsstofu og tók prófastur þátt í talningu atkvæða en Jón og fleiri vildu meina að brotið hefði verið gegn 12. grein laga nr. 110/2021 um lög um félög til almannaheilla, þar sem segir: „Einungis félagsmenn eiga atkvæðisrétt í félaginu. Í samþykktum félags má kveða á um að kjörnir fulltrúar þess geti tekið ákvarðanir fyrir hönd þess. Hver félagsmaður hefur atkvæðisrétt sem nemur einu atkvæði sé ekki annað tekið fram í samþykktum. Enginn getur farið með atkvæðisrétt annars samkvæmt umboði sé það ekki sérstaklega heimilað í samþykktum.“ Tekist á um brottrekstur organista „Það er risinn nýr dagur... á margan hátt,“ sagði Hreggviður Norðdahl fundarstjóri eftir að þjófavörn kirkjunnar fór af stað á miðnætti. Fundur hafði þá staðið yfir í fjóra tíma. Enn var þó eftir dagskrárliðurinn „önnur mál“ og þar varpaði Steingrímur Þórhallsson, organisti í Neskirkju og íbúi í Kópavogi, fram þeirri spurningu hvort það væri virkilega rétt sem Valgerður hefði getið í upphafsræðu sinni að Sólveigu Sigríði Einarsdóttur organista hefði verið sagt upp að ósk sóknarprestsins, Alfreðs Arnar Finnssonar. Fátt varð um svör og Steingrímur ítrekaði spurningu sína. Alfreð tók að lokum til máls og sagði málið „flóknara en svo“. Óskaði Steingrímur eftir nánari útskýringu og tókust hann og Hreggviður fundarstjóri nokkuð á þegar hvorki Valgerður né Alfreð létu meira í sér heyra. Valgerður endurtók að lokum það sem hún hafði áður sagt; að organistinn hefði verið látinn fara vegna óska sóknarprests um aðrar áherslur í tónlistinni og vegna skipulagsbreytinga. Fundurinn fór að flestu leiti vel fram þrátt fyrir að nokkur spenna væri í loftinu og mikið skrafað í hornum safnaðarheimilisins. Hins vegar tóku atkvæðagreiðslur langan tíma og var fundi ekki slitið fyrr en klukkan var langt gengin í eitt eftir miðnætti. „Nú verður friður,“ heyrðist eitt sóknarbarna segja á leiðinni út í myrkrið.
Þjóðkirkjan Kópavogur Kynferðisofbeldi MeToo Átök í Digraneskirkju Mest lesið Hnífstunga á Austurvelli Innlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Þorgerður til í fund og það strax Innlent Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Innlent Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Innlent Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Innlent Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Innlent Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Erlent Fleiri fréttir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Grunaður um að sparka ítrekað í höfuð samfanga Einum vísað til Albaníu en þrír enn í varðhaldi Allt að gerast á Húnavöku á Blönduósi um helgina Þorgerður til í fund og það strax Ráðherra bregst snögglega við og mikið stuð í Húnabyggð Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Lögregla og sérsveit handtóku fimm vegna gruns um frelsissviptingu Björgunarmenn sigu með fólk niður fjall við Ólafsfjörð Ógnuðu húsráðanda með hnífum og kylfum Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Sjá meira