Verslunarrekstur Orkunnar seldur til Heimkaupa og Gréta María ráðin forstjóri
![Gréta María Grétarsdóttir hefur komið víða við í íslensku atvinnulífi.](https://www.visir.is/i/8A5E8A45C790E02430EF8DC8F55B58474F6A088EEA60D156B60458B332A601AD_713x0.jpg)
Gréta María Grétarsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Arctic Adventures í eitt og hálft ár, mun taka við sem forstjóri Heimkaupa, samkvæmt heimildum Innherja. Hennar verkefni verður að byggja upp nýtt afl á smásölumarkaði en rekstur Heimkaupa verður í breyttri mynd þar sem allar einingar sem snúa að verslunarrekstri Orkunnar verða seldar til Heimkaupa.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/EA4ED77548C16913E9FC0F58A02F63E4D22836E51F4F5F3FA29ACCD7A106037C_308x200.jpg)
Hópuppsögn hjá Heimkaup
Tuttugu og fjórum starfsmönnum Heimkaups var sagt upp í dag. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir uppsagnirnar vera fylgikvilla endurskipulagningar innan fyrirtækisins. Aldrei sé þó auðvelt að fara í uppsagnir.