Viðbrögð „góða fólksins“ hafi verið viðbúin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. maí 2023 16:58 Hjörleifur við verksmiðju fyrirtækisins norðan heiða. Til hægri má sjá auglýsinguna umtöluðu sem birtist á vef Alfreðs. Eigandi plastverksmiðju á Akureyri segir „góða fólkið“ hafa orðið brjálað og hann kallaður arðræningi í ummælakerfum eftir auglýsingu eftir starfsmanni sem væri sjaldan veikur. Hann segir einfaldlega hafa viljað vekja athygli á því að hæfniskröfur væru í raun engar.
Hjörleifur Árnason er eigandi plastverksmiðjunnar Polynorth á Akureyri. Hann auglýsti á dögunum eftir starfsmanni á Alfreð.is. Í boði væri fjölbreytt, skemmtileg og líkamlega vinna. Hvort sem væri hálfur dagur, fullur dagur eða tímabundin vinna. Menntunar- og hæfnikröfur voru engar en hæfileiki til að vera sjaldan veikur væri kostur. Mbl.is fjallaði um auglýsinguna um helgina og vakti fréttin nokkra athygli. Þar sagði Hjörleifur nóg til af fólki sem væri veikt meira og minna alla daga. Þetta væri því það eina sem hann væri að leita að. Í samtali við Vísi segist hann alls ekki brenndur sjálfur af slíku starfsfólki, hvorki í plastverkmiðjunni eða í veitingarekstri fyrir norðan. Gætir ekki falið þig á bak við skort á hæfni „Þetta var eiginlega bara til að undirstrika að þú þyrftir engar hæfni til að sækja. Þú gætir ekki falið þig á bak við að þú værir ekki hæfur til að sækja um,“ segir Hjörleifur. Hann hafi verið í sambandi við Vinnumálastofnun á Akureyri í rúma tvo mánuði í leit að starfsfólki. Þótt nokkur hundruð séu á atvinnuleysisskrá hafi enginn sótt um. Auglýsing frá Polynorth í byrjun maí. Hjörleifur bætti við klausu í auglýsinguna sem birtist á Alfreð um að kostur væri að fólk væri ekki stöðugt veikt. Óhætt er að segja að sá moli hafi vakið athygli.Polynorth Hjörleifur segir viðbrögðin við viðtalinu um helgina hafa verið viðbúin. „Góða fólkið varð náttúrulega brjálað. Þetta er eitthvað sem enginn má tala um, þá verða þeir úthrópaðir. En það er gott að mér er slétt sama.“ Hins vegar hafi viðtalið orðið til þess að umsóknir streymi inn. Illt umtal betra en ekkert „Ég spilaði á tónleikum í gamla daga og sumum gagnrýnendum fannst frammistaðan ekki sérstök. En það er nú einu sinni þannig að illt umtal er betra en ekkert umtal,“ segir Hjörleifur á léttum nótum. Hann hafi fengið þann vafasama heiður að vera kallaður arðræningi í ummælum við frétt helgarinnar fyrir að reyna að reka fyrirtæki. „Það er nokkuð góður status,“ segir Hjörleifur en titillinn hefur hingað til aðallega verið notað um kvótakónga Hringt sé í símann, honum berist SMS og þá sé einn hreinlega mættur á verkstaðinn í prufu. Allir þeir sem haft hafa samband eigi það þó sameiginlegt að vera ekki á atvinnuleysisskrá hjá Vinnumálastofnun. Það hafi hvorki heyrst hósti né stuna. Hjörleifur hefur áhyggjur af stöðu mála í samfélaginu. Rúmlega fjögur prósent karla eru á atvinnuleysisbótum en hlutfallið hjá konum er helmingi lægra. Ríkið þenjist út enda þurfi að greiða þessu fólki laun. Fólki sem sæki svo ekki um þá vinnu sem sé í boði. Sjálfur vonast hann til að fá nýjan starfsmann í fullt starf og annan í hálft starf. Hann þurfi að meta hvernig sumarið fari af stað. Fyrirtækið framleiði aðallega einangrunarpast fyrir nýbyggingar og þar merkir Hjörleifur hægagang. Rólegt í byggingageiranum „Það er miklu minna að gera núna en í fyrra. Um leið og hægist á í nýbyggingum þá finnum við fyrir því. Eins ef iðnaðurinn tekur við sér,“ segir Hjörleifur. Ástandið í þjóðfélaginu geri mörgum erfitt um vik að festa kaup á fasteignum enda lánin hækkað verulega með endurteknum stýrivaxtahækkunum. Verktakar haldi sömuleiðis að sér höndum. „Skilgreiningin á geðveiki er að gera sama hlutinn aftur og aftur og halda að niðurstaðan verði önnur. Það er búið að hækka stýrivexti aftur og aftur. Niðurstaðan er sú að fólk og fyrirtæki fer í þrot á meðan bankarnir skila methagnaði,“ segir Hjörleifur og klórar sér í kollinum. „Ég er með BS-gráðu í viðskiptafræði en næ ekki þessu konsepti. Ég er örugglega bara svona vitlaus.“ Þá rifjar hann upp orð Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra þess efnis að fleiri þurfi að leggjast á árarnar til að snúa við verðbólgustöðunni. Seðlabankinn gæti hins vegar ekki beðið eftir öðrum. Hægagangur í nýbyggingum valdi ýmsum vandræðum. Mikil eftirspurn sé í Eyjafirði og ekki hafi hún minnkað með fjölgun flóttafólks á Akureyri. Þegar hefur verið tekið á móti 175 flóttamönnum og leitað að húsnæði fyrir fólkið sem flýr innrás Rússa í heimalandið. Hjörleifur segir þetta enn eitt dæmið um að stjórnmálafólk hugsi ekki langt fram í tímann. Lofi fólki húsnæði sem sé afar erfitt að finna. Sveitarfélagið geti brugðist við með því að úthluta fleiri lóðum. „Sveitarfélagið hefur haldið uppi lóðaverði í mörg ár með því að bjóða bara út fáar lóðir í einu.“
Akureyri Vinnumarkaður Verðlag Mest lesið Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fleiri fréttir Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Sjá meira