Seðlabankinn nauðbeygður til að hækka vexti um hundrað punkta
![Í viðtali við Innherja eftir vaxtaákvörðunar bankans undir lok marsmánaðar sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri að engin „sársaukalaus leið“ væri í boði til að vinna bug á verðbólgunni.](https://www.visir.is/i/DC3DFE92A197A05A52DB5518CCAFD77F4B53FCA0CD9E36303F3ADFE77F490EAE_713x0.jpg)
Yfirgnæfandi meirihluti markaðsaðila býst við því að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á vaxtaákvörðunarfundi bankans á morgun. Meginstefið í svörum þeirra sem tóku þátt í könnun Innherja er að Seðlabankinn sé nauðbeygður enda er langt í næstu vaxtaákvörðun, raunvextir enn neikvæðir og bankanum hefur ekki tekist að ná stjórn á verðbólguvæntingum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/67135EAE16EF12DE678E65F52A6EF763B550BB170A9430C0DCA1CD57F33680BF_308x200.jpg)
„Funheitt“ hagkerfi kallar á aðra stóra vaxtahækkun Seðlabankans
Nýlega birtar verðbólgutölur, mun hærri en greinendur höfðu vænst, ásamt öðrum hagvísum sem sýna mikinn þrótt í hagkerfinu þýðir að líkur eru á að vextir Seðlabankans verði hækkaðir í annað sinn í röð um 100 punkta síðar í þessum mánuði en verðbólguálag á skuldabréfamarkaði fer rísandi á nýjan leik. Áfram er mikill vöxtur í nýjum útlánum bankanna til atvinnufyrirtækja þrátt fyrir að fjármagnskostnaður hafi aukist verulega.