Atvinnulíf

„Mætti halda að ég væri að fara til útlanda á hverjum morgni“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Sigþrúður Ármann Culture & Communication Manager hjá Controlant, stjórnarformaður Exedra og stjórnarformaður Von harðfiskverkunar, vaknar svo snemma á morgnana að það mætti halda að hún væri alltaf að fara til útlanda. Hún viðurkennir hins vegar að hún sé svo kvöldsvæf að hún sé nánast óviðræðuhæf eftir klukkan tíu á kvöldin.
Sigþrúður Ármann Culture & Communication Manager hjá Controlant, stjórnarformaður Exedra og stjórnarformaður Von harðfiskverkunar, vaknar svo snemma á morgnana að það mætti halda að hún væri alltaf að fara til útlanda. Hún viðurkennir hins vegar að hún sé svo kvöldsvæf að hún sé nánast óviðræðuhæf eftir klukkan tíu á kvöldin. Vísir/Vilhelm

Sigþrúður Ármann, Culture & Communication Manager hjá Controlant, stjórnarformaður Exedra og stjórnarformaður Von harðfiskverkunar, segist vakna svo snemma að það mætti halda að hún væri að fara til útlanda á hverjum morgni.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt snemma á morgnana, um klukkan sex. Ég grínast stundum með það að það mætti halda að ég væri að fara til útlanda á hverjum morgni því ég vakna svo snemma. Það er svo gefandi að vakna og hlusta á fuglasönginn og njóta fallegu birtunnar.

Það er ekki alveg eins auðvelt að vakna svona snemma á veturna í myrkri og frosti en eins undarlegt og það kann að hljóma þá kemst það upp í vana og hefur ákveðinn sjarma.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Mér finnst æðislegt að hreyfa mig snemma á morgnana og fer oftast út að skokka við Vífilsstaðavatn eða í jóga. Það gefur mér mikla orku og ég fer í framhaldinu hress inn í daginn.“

Þegar þú varst lítil hvað hélstu eða dreymdir um að þú yrðir þegar þú værir orðin stór?

Þegar ég var lítil dreymdi mig um að verða flugstjóri. Mér fannst það spennandi. 

Ég man að ég var ekki ánægð með að það var frekar gert ráð fyrir að stelpur yrðu flugfreyjur og strákar flugstjórar. Strax sem stelpa hugsaði ég um að konur gætu verið í efstu stöðum í öllu atvinnulífinu. 

Að alast upp með frú Vigdísi Finnbogadóttur sem forseta og eiga æðislega foreldra hafði mikil og jákvæð áhrif á mig.“

Sigþrúður segist vera orðin meðvitaðri um það í dag að láta símann og samfélagsmiðla ekki taka af sér öll völd og hefur verið að reyna að minnka notkun þeirra. Í skipulagi býr hún sér til aðgerðarlista og segir einnig að til að afkasta sem mestu skipti góð næring, hreyfing og góður svefn gríðarlega miklu máli. Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana?

„Ég er nýbyrjuð að vinna hjá Controlant og er á fullu að kynnast þessu flotta fyrirtæki og öllu frábæra fólkinu sem þar vinnur. Það er virkilega lærdómsríkt.

Ég er einnig stjórnarformaður Exedra sem er vettvangur umræðna fyrir öflugan hóp kvenna og stjórnarformaður Von harðfiskverkunar sem er ein stærsta harðfiskframleiðsla landsins. Þannig að verkefnin mín eru fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég forgangsraða verkefnum og bý til aðgerðarlista. Hjá Controlant hef ég verið að læra á mikið að nýjum kerfum sem hjálpa mér meðal annars að hafa yfirsýn yfir verkefnin og forgangsraða þeim.

Ég er orðin meðvitaðri um að láta símann og samfélagsmiðla ekki taka af mér öll völd og hef verið að minnka notkun þeirra. 

Til að ná að afkasta sem mestu skiptir máli að vera full af orku og ég finn hvað góð næring, hreyfing og góður svefn skipta gríðarlega miklu máli.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég er mjög kvöldsvæf og er eiginlega óviðræðuhæf eftir klukkan tú á kvöldin. Ég vel að fara snemma sofa til að geta vaknað fersk á morgnana.

Hins vegar finnst mér sólsetrið og birtan á kvöldin á þessum árstíma mjög heillandi og skal alveg viðurkenna að ég á erfiðara með að fara snemma að sofa á sumrin en á veturna.“


Tengdar fréttir

„Hann gerir allt…. nema það sem honum finnst leiðinlegt“

Heima hjá Sigurði Pálssyni forstjóra BYKO er ófrávíkjanleg regla að allir borða saman og þá er oftar en ekki spurt „Hvað var það skemmtilegasta sem gerðist hjá þér í dag?“ Sigurður segist telja að hann fái 9 í einkunn þegar kemur að ýmsu heima fyrir, en viðurkennir að eflaust myndi eiginkonan svara spurningunni aðeins öðruvísi en hann.

Vaknar með Heimi og Gulla en dreymir um að fara í ræktina

Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish segist vakna með Heimi og Gulla á morgnana klukkan sjö, liggur þá og dormar um stund en dreymir um að vera týpan sem drífur sig fram úr og í ræktina.

Stórfiskaleikur, fallin spýta, skotbolti og „yfir“ öll kvöld í Breiðholtinu

Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu heldur mest upp á þann tíma dagsins þegar eiginmaðurinn færir henni kaffi í rúmið og þau taka spjallið saman fyrir daginn. Í æsku var það kröftugur hópur krakka í Breiðholtinu sem hittist öll kvöld til að fara í útleiki eins og þeir gerðust bestir.

Alltaf kaffi í rúmið og auðvitað í dúndurstuð með S.H.Draumi

Það er í nægu að snúast alla daga hjá Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR, sem er í hljómsveitinni Fjöll og að undirbúa endurkomu hljómsveitarinnar Los, að æfa sig undir átta daga hjólaferð til styrktar Umhyggju, að undirbúa frekari mótmæli við Austurvöll og almennt að finna eitthvað nýtt til að röfla yfir. Ragnar og eiginkonan byrja alltaf daginn með kaffi í rúmið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×