Magnesíum heiti potturinn - fyrsta sinn á Íslandi Artasan 21. júní 2023 09:30 „Hvað er meira slakandi en að liggja í potti sem er stútfullur af kraftmiklum magnesíum flögum og njóta á meðan þetta mikilvæga steinefni smýgur inn í líkamann,“ segir Úlfar Konráð Svansson, vörumerkjastjóri hjá Artasan. Better You ætlar í samstarfi við Laugardalslaug að bjóða upp á heitan pott með magnesíum flögum alla fimmtudaga í sumar. Better You hefur tekið höndum saman við Laugardalslaug þar sem boðið verður upp á heitan pott með magnesíum flögum alla fimmtudaga í sumar.
Magnesíum er einstaklega mikilvægt steinefni sem spilar nauðsynlegt hlutverk í yfir 300 lífefna- og lífeðlisfræðilegum ferlum í líkama okkar og er fjórða algengasta efnið í líkamanum. Helmingur magnesíums geymist í beinum og hinn helmingurinn deilist á vöðva og aðrar frumur. Magnesíum er nauðsynlegt steinefni fyrir eðlilega líkamsstarfsemi Magnesíum hefur ekki aðeins slakandi og róandi áhrif á sál og líkama heldur spilar það stórt hlutverk í að viðhalda almennu heilbrigði og efla okkur andlega sem líkamlega. Magnesíum stuðlar m.a. að eðlilegri vöðvastarfsemi og prótínmyndun ásamt viðhaldi eðlilegra beina og tanna Jafnframt er magnesíum nauðsynlegt fyrir hjarta- og æðakerfi, alla orkuvinnslu í líkamanum, sem og jafnvægi blóðsykurs. Magnesíum er talið bæta snerpu og styrk hjá íþróttafólki sem og minnka skemmdir og bæta endurheimt. Magnesíum róar taugakerfið, hefur slakandi áhrif á líkamann og getur jafnvel komið í veg fyrir fótapirring sem oft gerir vart við sig á kvöldin. Magnesíum heiti pottur í Laugardalslaug „Við byrjum með magnesíum pottinn fimmtudaginn 22. júní þar sem við bjóðum upp á slökunarpott í allt sumar,“ segir Úlfar Konráð Svansson, vörumerkjastjóri hjá Artasan. „Hvað er meira slakandi en að liggja í potti sem er stútfullur af kraftmiklum magnesíum flögum og njóta á meðan þetta mikilvæga steinefni smýgur inn í líkamann. Flögurnar leysast upp í vatni og þegar þeim er bætt út í pottinn skilar magnesíum sér beint í gegnum húðina og inn í frumur líkamans hratt og örugglega. Að liggja í magnesíum potti er slakandi fyrir sál og líkama og einstakt tækifæri að prófa í Laugardalslauginni í sumar,“ segir Úlfar. Better You býður upp á magnesíum í sínu náttúrulegasta formi Better You hefur til fjölda ára notið vinsælda víða um heim og ekki af ástæðulausu enda mikið lagt upp úr gæðum. Better You hefur framleitt fjölda vara sem innihalda öflugt magnesíum og notast er við Zechstein® Magnesíum sem er eitt hreinasta og náttúrulegasta form magnesíum sem fyrir finnst. Zechstein® frásogast auðveldlega í gegnum húðina og nýtist líkamanum afar vel. Nánari upplýsingar á vef Lyf og heilsu.
Heilsa Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira