Gríðarlegur halli á vöruviðskiptum í júní Árni Sæberg skrifar 10. júlí 2023 14:49 Mikið var flutt inn af vörum í júní. Vísir/Vilhelm Vöruviðskipti við útlönd voru óhagstæð um 43,1 milljarð króna í júní. Það er 25,3 milljarða króna meiri halli en á sama tíma í fyrra.
Fluttar voru út vörur fyrir 76,7 milljarða króna í júní 2023 og inn fyrir 119,8 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mánaða hafi verið óhagstæður um 368,8 milljarða króna, sem sé 144,8 milljarða króna óhagstæðari jöfnuður en á tólf mánaða tímabili ári fyrr. Inn- og útflutningur eykst Verðmæti vöruútflutnings í júní 2023 hafi verið 9,9 milljörðum króna minna en í júní 2022, farið úr 86,6 milljörðum króna í 76,7 milljarða. Hins vegar hafi verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili verið 989,8 milljarða króna og aukist um 93,7 milljarða króna miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 10,5 prósent á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur hafi verið 56 prósent alls vöruútflutnings og verðmæti þeirra aukist um 9,9 prósent samanborið við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Sjávarafurðir hafi verið 36 prósent alls vöruútflutnings en verðmæti þeirra aukist um 11,6 prósent í samanburði við tólf mánaða tímabil ári fyrr. Verðmæti vöruinnflutnings hafi hins vegar numið 119,8 milljörðum króna í júní 2023 samanborið við 104,4 milljarða í júní 2022 og hækkað því um 15,4 milljarða króna, eða um 14,8 prósent. Verðmæti fjárfestingarvara utan flutningstækja hafi numið 27,9 milljörðum króna sem sé aukning um 5,5 milljarða króna, eða tæplega fjórðungsaukning. Verðmæti hrá- og rekstrarvöru hafi numið 34,8 milljörðum króna og aukist um 6,5 milljarða og verðmæti eldsneytis og smurolíu numið 12,4 milljörðum og aukist um 1,4 milljarða króna samanborið við júní 2022. Verðmæti vöruinnflutnings á tólf mánaða tímabili hafi verið 1.358,6 milljarðar króna og aukist um 238,5 milljarða miðað við tólf mánaða tímabil ári fyrr eða um 21,3 prósent á gengi hvors árs fyrir sig. Aukningin hafi verið mest í eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingavörum.
Efnahagsmál Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira