Ísland í riðli með kunnuglegum andstæðingum Sindri Sverrisson skrifar 8. ágúst 2023 09:53 Ísland vann frábæra sigra í undankeppni HM og var hársbreidd frá því að komast í lokakeppnina. Nú hefur verið dregið í undankeppni EM. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Íslenska karlalandsliðið í körfubolta leikur í erfiðum riðli í næstu undankeppni Evrópumótsins en þarf að eiga við andstæðinga sem liðið þekkir eða mun þekkja vel.
Ísland dróst í dag í B-riðil með Ítalíu, Tyrklandi og Ungverjalandi. Íslandi var raðað í 7. styrkleikaflokk fyrir dráttinn og fékk eitt lið úr 2., 3. og 6. flokki með sér í riðil. Ítalía kom úr 2. flokknum, Tyrkland úr 3. flokki og Ungverjaland úr 6. flokknum, en hér að neðan má sjá allan dráttinn. Drátturinn í undankeppni EM karla í körfubolta.FIBA Ísland var einmitt einnig í riðli með Ítalíu í síðustu undankeppni HM, og vann þá frækinn sigur í framlengdum leik í heimaleik sínum. Ísland mætti Ungverjalandi fyrir aðeins níu dögum, á æfingamóti í Ungverjalandi, og tapaði þá naumlega, 73-69, eftir að hafa verið ellefu stigum undir í hálfleik, 40-29. Íslenska liðið er svo í riðli með Tyrklandi í undankeppni Ólympíuleikanna, þar sem liðið hefur keppni á laugardaginn með leik við Tyrki og spilar svo einnig við Úkraínu og Búlgaríu, en allir leikirnir fara fram í Tyrklandi. Þrjú efstu liðin í hverjum riðli fara áfram í lokakeppni EM. Með góðum árangri í undankeppni HM síðastliðin tvö ár tryggði Ísland sér sæti beint í undankeppni EM í stað þess að þurfa að fara í forkeppnina. Leikið verður í undankeppni EM árið 2024 dagana 19.-27. febrúar og 18.-26. nóvember, og síðan 17.-25. febrúar 2025. Tveir leikir verða spilaðir í hverjum landsliðsglugga.
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira