Viðskipti innlent

Sam­keppnis­eftir­litið kannar hvort bankarnir leggi stein í götu Indó

Eiður Þór Árnason skrifar
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Vísir/arnar

Samkeppniseftirlitið kannar hvort hertar reglur viðskiptabankanna um gjaldeyrisviðskipti feli í sér samkeppnishömlur gagnvart sparisjóðnum Indó sem er nýr aðili á markaði. Samkvæmt reglunum þurfa einstaklingar sem vilja skipta gjaldeyri að vera í viðskiptum við bankanna og hafa svarað áreiðanleikakönnun.

Þetta hefur haft áhrif á viðskiptavini Indó í ljósi þess að sprotafyrirtækið rekur engin útibú og selur ekki gjaldeyrisseðla. Neyðast viðskiptavinir sparisjóðsins því að leita annað.

„Við ætlum að setja okkur í samband við Indó og fá betri lýsingu á þessu og síðan leita skýringa hjá bönkunum vegna þess að það er skynsamlegt að nýta dæmi af þessu tagi til þess að skoða hvort þarna séu hindranir sem bankarnir séu mögulega að reisa fyrir nýjan keppinaut,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins en hann ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. 

„Ef það reynist rétt þá er ekki hægt að líða það.“ Ekki sé hægt að slá því föstu á þessum tímapunkti hvort um samkeppnishindranir sé að ræða en málið verði kannað nánar.

Reglunum ætlað að uppfylla lagalegar skyldur

Að sögn Arion banka ber honum samkvæmt lögum að framkvæma áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum, hafa eftirlit með uppruna fjármuna og tryggja að viðskipti séu rekjanleg. Um sé að ræða varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

„Vegna þessa teljum við okkur ekki kleift að eiga í reiðu­fjár­við­skiptum í úti­búum bankans við aðra en þá sem hafa farið í gegnum áreiðanleikakönnun hjá okkur. Við tókum þetta verk­lag upp árið 2020 og ný­verið hertum við á reglunum.“

Rýmri reglur gildi í útibúi bankans á Keflavíkurflugvelli þar sem allir geti keypt gjaldeyri gegn framvísun brottfararspjalds. Svör Íslandsbanka og Landsbanka voru á svipaðan veg og nefndu fulltrúar að breytingar hafi verið gerðar til að uppfylla kröfur um eftirlit með peningaþvætti.

Reynt að auðvelda fólki að skipta um banka

Páll segir Samkeppniseftirlitið lengi haft áhyggjur af aðgangshindrunum þegar kemur að þjónustu viðskiptabanka.

„Reynslan hefur verið sú að það hefur verið gríðarlega erfitt fyrir nýja keppinauta að koma inn á þennan markað og fara að sinna alhliða fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og lítil fyrirtæki.“

Eitt slíkt mál hafi verið til skoðunar fyrir nokkrum árum og endað með sátt við alla bankana þar sem markmiðið var að auðvelda viðskiptavinum að skipta um banka.

„Ef neytandinn á auðveldara með að skipta um banka þá er auðvitað eðli málsins samkvæmt auðveldara fyrir nýjan aðila að koma inn á markaðinn. Núna er Indó að koma inn á markaðinn og það er alltaf áhugavert þegar nýir aðilar reyna að koma inn á svona markað eins og þennan.“

Þurfi að hafa málefnalegar ástæður

Aðspurður hvort það sé ekki eðlilegt að fyrirtæki séu einungis tilbúin að veita vissa þjónustu til einstaklinga sem eigi í viðskiptum við þau segir Páll að það geti verið skiljanlegt frá sjónarhóli bankanna en það segi ekki alla söguna.

„Þegar svona stórir aðilar eru fyrir á fleti þá þurfa þeir að gæta síns í hvernig þeir haga sinni starfsemi og ef að þeir eru að reisa hindranir fyrir nýjan aðila til að koma inn á markaðinn þá þurfa þær að vera mjög málefnalegar. 

Ef þær eru það ekki þá geta þær verið annað hvort brot á fyrri ákvörðunum samkeppnisyfirvalda eða bara hreinlega lögum. Það er það sem við þurfum að skoða hvort að það geti verið tilfellið í þessu en það er ekki hægt að segja til um það fyrir fram,“ sagði Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.


Tengdar fréttir

Undrandi á því að bankarnir meini við­skipta­vinum Indó að nálgast gjald­eyri

Sam­kvæmt nýjum reglum við­skipta­bankanna þriggja þurfa við­skipta­vinir nú að vera búnir að svara á­reiðan­leika­könnun og vera í við­skiptum við bankanna áður en þeir skipta gjald­eyri hjá bönkunum. Við­skipta­vinir sem hafa fært sig annað, til að mynda til spari­sjóðsins Indó hafa lent í vand­ræðum vegna þessa. Fram­kvæmda­stjóri Indó segir vert að at­hugað sé hvort nýjar reglur sam­rýmist sátt bankanna við Sam­keppnis­eftir­litið frá 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×