Greinandi gagnrýnir Íslandsbanka fyrir lélega upplýsingagjöf við sekt FME
![Vakin er athygli á því í hlutabréfagreiningu að Íslandsbanki hafi fengið frumat af skýrslu Fjármálaeftirlitsins um áramót. Hins vegar hafi „alvarleiki brota Íslandsbanka“ ekki komið í ljós fyrr en í lok júní þegar eftirlitið birti skýrslu um málið.](https://www.visir.is/i/C4E2904A055CFC12AD2BF4C3819FC99CAE5F4FB0F09590312BDD21A8E28EC66F_713x0.jpg)
Hlutabréfagreinandi gagnrýnir Íslandsbanka fyrir að hafa ekki upplýst markaðinn fyrr hve alvarlegum augum Fjármálaeftirlit Seðlabankans (FME) leit brot bankans í tengslum við sölu á eigin bréfum. Þá hefði Jakobsson Capital lagt aukið álag á ávöxtunarkröfu Íslandsbanka – sem stuðlar að lægra verðmati – við upphaf árs.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/99C77E252D5BF37EBA0087A7D911DB64DCB32DC1638DEDAAA808125768D7FE4D_308x200.jpg)
Sektin „töluvert hærri“ en markaðurinn gerði ráð fyrir
Sú sektarfjárhæð sem Íslandsbanki hefur fallist á að greiða upp á 1.160 milljónir vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér er fordæmalaus ef litið er til þeirra sekta sem hafa verið lagðar á eftirlitsskylda aðila þegar málum hefur lokið með sátt við fjármálaeftirlitið.