Útlit fyrir að EBIT-hlutfall Marels verði undir tíu prósent á krefjandi fjórðungi
![Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, en félagið mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja fjórðung eftir lokun markaða í dag.](https://www.visir.is/i/565D52E6F9B655AA446E179F3A2B865A862D3855112B0411ABBCD596231E8F51_713x0.jpg)
Gangi spár greinenda eftir verður samdráttur á flestum sviðum Marels á milli ára þegar félagið birtir uppgjör sitt fyrir þriðja fjórðung eftir lokun markaða í dag og að framlegðarhlutfallið muni vera um rétt tæplega tíu prósent. Hlutabréfaverð Marels hefur fallið um liðlega fjórðung á innan við tveimur mánuðum og ekki verið lægra frá því snemma árs 2018.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/2A6EEB1D34A9E8DFF2AB8E93E558F926B1759C385BE5985328329623E8C60FE4_308x200.jpg)
Eftir tímabil hægagangs hjá Marel hefur komið kröftugur vöxtur
Fjóra ársfjórðunga í röð hafa pantanir verið með minna móti (e. soft) hjá Marel. Það gerðist síðast árið 2009 að pantanir voru ekki ýkja miklar fjóra fjórðunga í röð. Í kjölfarið jukust pantanir um 21 prósent á tólf mánuðum. Pantanir voru dræmar þrjá fjórðunga í röð á árunum 2013-2014. Að þeim tíma liðnum jukust pantanir líka mikið á næstu tólf mánuðum, upplýsti forstjóri Marels á afkomufundi með fjárfestum.