Arnór orðaður við Leicester City Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. október 2023 23:00 Arnór Sigurðsson kann vel við sig á Englandi. Alex Dodd/Getty Images Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson er orðaður við Leicester City, topplið ensku B-deildarinnar, en hann spilar í dag með Blackburn Rovers í sömu deild.
Fótbolti.net greindi fyrst frá en heimildarmenn miðilsins segja að Leicester horfi hýru auga til hins 24 ára gamla Skagamanns sem er á sínu fyrsta tímabili í Englandi. Arnór er enn í eigu CSKA Moskvu en eftir innrás Rússa í Úkraínu gátu erlendir leikmenn í Rússlandi farið frá sínum félögum á láni. Þá fór Arnór aftur til Norrköping þar sem hann hóf atvinnumannaferilinn. Þar blómstraði hann og Blackburn vildi í kjölfarið fá hann. Alþjóðaknattspyrnusambandið leyfði leikmönnum einnig að fara á láni á þessari leiktíð og því fór Arnór til Englands. Hann verður svo samningslaus sumarið 2024 og getur þá samið við hvaða lið sem er. Skagamaðurinn var meiddur þegar hann mætti til Blackburn en eftir að hann jafnaði sig af meiðslunum hefur hann spilað frábærlega fyrir liðið sem er um þessar mundir í 12. sæti ensku B-deildarinnar á meðan Leicester er á toppi deildarinnar. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Refirnir fari beint aftur upp eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Arnór hefur skorað fjögur mörk í átta leikjum fyrir Blackburn. Þá hefur hann spilað 28 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim tvö mörk.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Sjá meira