Kári hefur aldrei verið í tapliði í KFUM-slagnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2023 15:30 Kári Jónsson fagnar sigri með Valsmönnum. Vísir/Bára Kári Jónsson er uppalinn Haukamaður en hann spilar í dag með Val. Kári hefur aldrei upplifað það að vera í tapliði í úrvalsdeildinni þegar þessi tvö lið mætast. Haukar taka á móti Kára og Valsmönnum í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 19.15. Undir í kvöld er sú staðreynd að Kári hefur aldrei verið í tapliði í KFUM-slagnum svonefnda. Séra Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM, kom að stofnun beggja félaga. Kári hefur alls spilað sex sinnum í leik Vals og Hauka og liðið með Kára hefur unnið í öll sex skiptin. Fjórum sinnum hefur hann fagnað sigri með Haukum á móti Val en í síðustu tveimur leikjum hefur hann hjálpað Val að vinna Hauka. Í síðustu fjórum leikjum sínum þegar þessi lið hafa mæst þá hefur Kári skorað 26,0 stig og gefið 6,3 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann hefur skorað yfir tuttugu stig í þeim öllum og hefur verið algjör lykilmaður í að landa sigrinum. Kári hefur líka hækkað þriggja stiga skotnýtingu sína með hverjum leik en hún hefur verið í réttri röð, 0%, 20%, 25%, 29%, 33% og loks 43% í síðasta leik þar sem hann skoraði sex þriggja stiga körfur.
Haukar taka á móti Kára og Valsmönnum í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 19.15. Undir í kvöld er sú staðreynd að Kári hefur aldrei verið í tapliði í KFUM-slagnum svonefnda. Séra Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM, kom að stofnun beggja félaga. Kári hefur alls spilað sex sinnum í leik Vals og Hauka og liðið með Kára hefur unnið í öll sex skiptin. Fjórum sinnum hefur hann fagnað sigri með Haukum á móti Val en í síðustu tveimur leikjum hefur hann hjálpað Val að vinna Hauka. Í síðustu fjórum leikjum sínum þegar þessi lið hafa mæst þá hefur Kári skorað 26,0 stig og gefið 6,3 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann hefur skorað yfir tuttugu stig í þeim öllum og hefur verið algjör lykilmaður í að landa sigrinum. Kári hefur líka hækkað þriggja stiga skotnýtingu sína með hverjum leik en hún hefur verið í réttri röð, 0%, 20%, 25%, 29%, 33% og loks 43% í síðasta leik þar sem hann skoraði sex þriggja stiga körfur. Sex leikir Kára Jónssonar í viðureign Hauka og Vals 2013 með Haukum á móti Val: 15 stiga sigur, 85-70 (Kári með 4 stig) 2014 með Haukum á móti Val: 32 stiga sigur, 92-60 (Kári með 5 stig) 2017 með Haukum á móti Val: 15 stiga sigur, 101-86 (Kári með 24 stig) 2019 með Haukum á móti Val: 16 stiga sigur, 94-78 (Kári með 21 stig) 2022 með Val á móti Haukum: 10 stiga sigur, 87-77 (Kári með 28 stig) 2023 með Val á móti Haukum: 8 stiga sigur, 84-76 (Kári með 31 stig)
Sex leikir Kára Jónssonar í viðureign Hauka og Vals 2013 með Haukum á móti Val: 15 stiga sigur, 85-70 (Kári með 4 stig) 2014 með Haukum á móti Val: 32 stiga sigur, 92-60 (Kári með 5 stig) 2017 með Haukum á móti Val: 15 stiga sigur, 101-86 (Kári með 24 stig) 2019 með Haukum á móti Val: 16 stiga sigur, 94-78 (Kári með 21 stig) 2022 með Val á móti Haukum: 10 stiga sigur, 87-77 (Kári með 28 stig) 2023 með Val á móti Haukum: 8 stiga sigur, 84-76 (Kári með 31 stig)
Subway-deild karla Haukar Valur Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira