Lífeyrissjóðir voru ekki áhugasamir um tilboð JBT í Marel
![Arnar Másson, stjórnarformaður Marels. Sigurður Egilsson, afi Arnars, fjárfesti fyrst í Marel árið 1992 í kjölfar skráningar fyrirtækisins á hlutabréfamarkað.](https://www.visir.is/i/48C60199244AF020452826F7476883CF484DE99D0D23A3B034067A4C8BEA6F96_713x0.jpg)
Stjórnendur lífeyrissjóða, sem Innherji ræddi við, voru ekki áhugasamir um óskuldbindandi tilboð bandaríska fyrirtækisins John Bean Technologies Corporation í Marel. Þeim þótti gengið of lágt og óspennandi að fá greitt að stórum hluta með hlutabréfum í erlendu félagi. Gengi Marels lækkað um allt að nærri fjögur prósent í fyrstu viðskiptum dagsins eftir að stjórn þess hafnaði tilboðinu. Hún er þó opin fyrir betri tilboðum í félagið.