Innlent

Hvetur til sniðgöngu því enginn hafi axlað á­byrgð

Lovísa Arnardóttir skrifar
Einar Örn segir starfsmenn algerlega hafa brugðist bæði þolanda og aðstandendum hennar. 
Einar Örn segir starfsmenn algerlega hafa brugðist bæði þolanda og aðstandendum hennar.  Samsett

Einar Örn Jónsson, foreldri stúlku sem beitt var kynferðisofbeldi í sumarbúðunum í Reykjadal, segir það sárt að allur ágóði af sölu Kærleikskúlunnar renni í ár til sumarbúðanna. Hann, og aðrir aðstandendur stúlkunnar, hvetja til sniðgöngu kúlunnar.

Kærleikskúlan er framleidd af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðar (SLF) og rennur ágóði af sölu hennar alltaf til sumarbúðanna. Í ár er kúlan hönnuð af listamanninum Guðjóni Ketilssyni.

„Stutt er síðan starfsmaður búðanna beitti níu ára stúlku sem þar dvaldi kynferðisofbeldi. Aðstandendum Kærleikskúlunnar ætti því að vera fullkunnugt um hvernig starfsmenn sumarbúðanna brugðust við glæpnum sem hefði auðvitað aldrei átt að eiga sér stað. Starfsmenn spilltu vettvangi glæpsins, komu geranda undan og kölluðu hvorki til lögreglu né barnavernd eins og þeim bar að gera lögum samkvæmt. Þannig brugðust þeir algerlega þolanda og aðstandendum hans,“ segir Einar Örn í aðsendri grein á vef Vísis í dag.

Hann segir enn engan hafa axlað ábyrgð á ofbeldinu. Ekki innan stjórnar eða meðal starfsfólks.

„Í kjölfar atviksins í Reykjadal var farið í úttekt á verkferlum í Reykjadal og komið upp viðbragðsáætlun í samstarfi við Barnaheill og er það vel. Hafa skal hugfast að SLF var nauðugur einn kostur að fara í þá vinnu því annars átti félagið yfir höfði sér að rekstrarleyfið yrði tekið af þeim og skellt í lás í Reykjadal. Okkur aðstandendum þolandans í málinu finnst hins vegar ótækt að SLF sé að fara í fjáröflun og ímyndarherferð á þessum tíma meðan enginn innan félagsins hefur axlað raunverulega ábyrgð á því sem þar gerðist sumarið 2022,“ segir Einar Örn í greininni og að hann hvetji því fólk til að sniðganga kúluna í ár.

Fyrr í sumar kom út skýrsla um atvikið sem átti sér stað sumarið 2022. Skýrslan var unnin af Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og voru í henni boðaðar ýmsar úrbætur. Þar kom fram að viðbrögð starfsmanna sumarbúðanna í Reykjadal hafi verið ómarkviss, ámælisverð og alvarleg þegar níu ára stúka með fötlun sagði þroskaskertan starfsmann hafa brotið á sér kynferðislega.

Ekki rétt brugðist við

Þá sagði að stofnunin teldi alvarlegan misbrest hafa verið á viðbrögðum starfsmanna og stjórnenda Reykjadals þegar upp komst um atvikið og verkferla hafi skort. Það hafi leitt til þess að starfsfólk vissi hvernig það ætti að bregðast við tilkynningunni.

Vegna þessa hafi maðurinn verið færður af vettvangi í stað þess að hafa tafarlaust samband við lögreglu. Enn fremur hafi lök, með mögulegum lífsýnum, verið tekin af rúmum og sett í hrúgu áður en lögregla kom á staðinn.

Forstjóri stofnunarinnar, Herdís Gunnarsdóttir, sagði í viðtali við Stöð 2 í sumar að á heimferðardegi stúlkunnar hafi verið álag í þjónustunni sem varð til þess að eftirlit með barninu var ekki tryggt.

„Og það skapast aðstæður þar sem utanaðkomandi starfsmaður, sem er í verndaðri vinnu, kemst inn í herbergi hjá barninu og lokar að þeim. Þau eru ein í stutta stund án eftirlits,“ sagði Herdís í sumar. 


Tengdar fréttir

Rannsaka kynferðisbrot gegn barni í Reykjadal

Lögregla hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot í sumarbúðunum í Reykjadal í ágúst 2022. Foreldrar barnsins lýsa brotunum í samtali við Heimildina og þeim áhrifum sem þau hafa haft á fjölskylduna. Málið allt hafi verið helvíti frá upphafi til enda.

Á­byrgðin er ekki for­eldra

Guðrún Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, skrifaði grein á Vísi á dögunum um kynferðisbrot og annars konar ofbeldi gegn börnum í sumarbúðum, sumarnámskeiðum og öðru tómstundastarfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×