Verðlaunaplötur úr ýmsum áttum Samúel Karl Ólason skrifar 15. desember 2023 11:29 Verðlaunahafa Kraumsverðlaunanna 2023. Kraumsverðlaunin voru afhent á Kex í gærkvöldi og í sextánda sinn. Að þessu sinni voru það þau Apex Anima, Elín Hall, Eva808, Neonme, Spacestation og ex.girls sem hlutu verðlaunin, sem veit eru fyrir þær hljómplötur sem þykja skara fram úr á Íslandi.
Í tilkynningu segir að verðlaunaplötur ársins komi úr ýmsum áttum og spanni meðal annars þjóðlagaskotna popptónlist, drífandi teknó og gítargrúvað rokk. Sjá einnig: Margir nýliðar tilnefndir til Kraumsverðlauna Eva808 (Eva Jóhannsdóttir) er að hljóta sín önnur Kraumsverðlaun, en hún fékk verðlaunin fyrst árið 2020 fyrir sína fyrstu breiðskífu; Saultry Venom. Fram að þessu hafa sex aðrir listamenn og hljómsveitir hlotið Kraumverðlaunin í tvígang; Retro Stefson (Montaña, 2008 og Retro Stefson, 2012), Mammút (Karkari, 2008 og Komdu til mín svarta systir, 2013), Hjaltalín (Terminal, 2009 og Enter 4, 2012), Dj flugvél og geimskip (Glamúr í geimnum, 2013 og Nótt á hafsbotni, 2015), Kælan Mikla (Kælan mikla, 2016 og Nótt eftir nótt, 2018) og Gugusar (listen to this Twice, 2020 og 12:48, 2022). Kraumsverðlaunin eru árleg plötuverðlaun Auroru velgerðarsjóðs og er þeim ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Þau voru fyrst veitt árið 2008. Elín Hall á sviði. Meðal Kraumsverðlaunhafa fyrri ára má nefna: Auður, ADHD, Agent Fresco, Amiina, Anna Þorvaldsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Ásgeir, Between Mountains, Bjarki, BSÍ, Cell7, Daníel Bjarnason, FM Belfast, GDRN, GKR, Grísalappalísa, gugusar, Gunnar Andreas Kristinsson, Gyða Valtýsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Helgi Hrafn Jónsson, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit, JDFR, Kvikindi, Kælan mikla, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Misþyrming, Ojba Rasta, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Samaris, Sin Fang, Skrattar, Sóley, Una Torfa og fjölmargir fleiri. Dómnefnd Kraumsverðlaunanna þetta árið. Kraumsverðlaunin 2023 eru valin af níu manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina skipa; Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir. Kraumsverðlaunahafarnir í ex.girls (áður russian.girls) tóku lagið Hundrað í hættunni í beinni fyrir myndbandaseríu Útvarps 101 og Stúdíó Sýrlands í fyrra. Lagið má finna á plötunni nýju Verk:
Tónlist Mest lesið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira