Enn snjóflóðahætta þótt veðrið hafi gengið niður Ólafur Björn Sverrisson skrifar 25. desember 2023 08:05 Kalt veður verður á jóladag. vísir/vilhelm Enn er snjóflóðahætta á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum, þó að veðrið hafi gengið niður í nótt eins og búist var við. Kuldinn verður nokkuð mikill.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi og hefur verið frá Þorláksmessu. Enn má búast við að vegir undir bröttum fjallshlíðum lokist vegna snjóflóða en ekki er talin hætta í byggð. Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður norðaustan 8-13 m/s með éljum norðan- og austanlands í dag, en bjart sunnan heiða. Þá dregur smám saman úr vindi og úrkomu og kólnar, en nú í morgunsárið er hiti víða nærri frostmarki á landinu. Á höfuðborgarsvæði er búist við bjartviðri og frosti 1-8 stigs. Suðaustan 5-13 á morgun, snjókoma með köflum seinnipartinn og hiti nálægt frostmarki. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austlæg átt, 8-15 m/s og snjókoma eða él, hvassast á Vestfjörðum, en þurrt vestantil fram eftir degi. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost norðvestantil. Á fimmtudag: Norðaustan 5-13 m/s og snjókoma eða él norðvestantil, en annars bjart með köflum. Frost 0 til 12 stig, kaldast norðaustanlands. Á föstudag: Fremur hæg breytileg átt og dálítil snjókoma, en úrkomulítið austantil. Áfram kalt í veðri. Á laugardag: Útlit fyrir hægt vaxandi norðaustanátt með éljum víðast hvar, en snjókomu sunnantil um kvöldið. Talsvert frost um land allt. Á sunnudag (gamlársdagur):Líklega ákveðin og köld norðanátt með snjókomu eða éljagangi víða um land, en úrkomulítið suðvestanlands.
Veður Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Kaldi eða strekkingur á suðvestan- og vestanverðu landinu Væta með stífri norðaustanátt Stíf norðanátt með rigningu víða um land Allvíða skúrir og lægð nálgast Víða rigning en hiti að átján stigum Úrkoma í flestum landshlutum í dag Úrkoma víða og hiti að sextán stigum Víða skúraleiðingar og hiti að fimmtán stigum Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sjá meira